Minnst afskrifað í sjávarútvegi Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. október 2011 14:06 Steinþór Pálsson segir að Landsbankinn hafi afskrifað minnst í sjávarútvegi.
Landsbankinn hafði afskrifað skuldir fyrirtækja um 390 milljarða króna í lok septembers síðastliðinn, sagði Steinþór Pálsson, forstjóri Landsbankans á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna á fimmtudaginn. Hann sagði að bankinn hafi fært einna minnst niður af lánum hjá sjávarútvegi. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, birti á fimmtudaginn svar við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur, þingmanns Hreyfingarinnar, um afskrifaðar skuldir sjávarútvegsfyrirtækja. Þar kemur fram að á árunum 2009-2010 voru afskrifaðar skuldir að andvirði um 10,5 milljarðar króna. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segist ekki vita hvernig upphæðin skiptist niður á sjávarútvegsfyrirtækin. Hann fagnar því að það skuli liggja fyrir hvernig afskriftir skiptast niður á atvinnugreinar, en segir að þá þurfi heildarmyndin að liggja fyrir. Í svari Árna Páls við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar á septemberþingi hafi til dæmis verið upplýst að 35 milljarðar hefðu verið afskrifaðir á fyrirtæki í fasteignaviðskiptum, 25 milljarðar á félög í byggingarstarfsemi, 29 á fyrirtæki í verslun, 19 hjá þjónustufyrirtækjum og 15 hjá iðnaðarfyrirtækjum og í landbúnaði. Friðrik viðurkennir að vissulega hafi sjávarútvegsfyrirtækin búið við hagstæð rekstrarskilyrði frá hruni krónunnar. Það sama eigi við um önnur útflutningsfyrirtæki og þau fyrirtæki sem eru að keppa á innanlandsmarkaði við innfluttar vörur. „En það gleymist nú stundum að við erum nýkomin úr langvarandi sterku gengi,“ segir Friðrik.
Mest lesið Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Fleiri fréttir Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Sjá meira