Forstjóri Bakkavarar fékk 112 milljónir í laun í fyrra 4. nóvember 2011 08:00 Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar Group mynd/Vilhelm Gunnarsson
Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar Group, fékk 111,7 milljónir króna á gengi dagsins í dag í laun, starfstengdar greiðslur og lífeyrisréttindi á síðasta ári. Alls námu launagreiðslur Ágústs 95,3 milljónum króna, starfstengdu greiðslurnar námu um 4,1 milljón króna og greiðslur í lífeyrissjóð 12,3 milljónum króna. Mánaðarlaun Ágústs, að meðtöldum fríðindum, voru því um 9,3 milljónir króna á árinu 2010. Á sama tíma tapaði Bakkavör Group um 2,5 milljörðum króna. Stjórnarformaður Bakkavarar er Lýður Guðmundsson, bróðir Ágústs. Þeir eru einnig stærstu eigendur félagsins. Þetta kemur fram í ársreikningi Bakkavarar-samstæðunnar sem skilað var inn til Ársreikningaskrár í lok september síðastliðins. Laun og starfstengdar greiðslur Ágústs voru þær sömu og á árinu 2009 en hann fékk ekki jafn ríflegar lífeyrissjóðsgreiðslur á því ári. Þá skilaði Bakkavör Group um 2,2 milljarða króna tapi. Ágúst hefur þó tekið á sig ríflega launalækkun frá árinu 2008 þegar hann var samtals með um 182,2 milljónir króna í laun og starfstengdar greiðslur. Á því ári tapaði Bakkavör Group um 28,4 milljörðum króna. Ágúst fékk því um 393,3 milljónir króna í laun, starfstengdar greiðslur og lífeyrissjóðsgreiðslur frá byrjun árs 2008 og út árið 2010. Á sama tíma tapaði Bakkavör Group um 33 milljörðum króna á gengi dagsins í dag. Bakkavör Group gerði nauðasamning við kröfuhafa sína í mars 2010. Samkvæmt honum ætlaði félagið að endurgreiða þeim um 92 milljarða króna fram til loka júnímánaðar 2014. Gengi það eftir myndu bræðurnir Ágúst og Lýður halda 25% eignarhlut í félaginu sem þeir stofnuðu árið 1986. Ef Bakkavör tækist ekki að greiða skuldina til baka myndu kröfuhafar hins vegar breyta kröfum sínum í hlutafé og taka yfir eign þeirra. Rekstur Bakkavarar hefur gengið mun lakar en nauðasamningurinn gerði ráð fyrir. Engar greiðslur hafa enn sem komið er verið inntar af hendi til kröfuhafanna. Heimildir Fréttablaðsins herma að þeir telji litlar sem engar líkur á því að skuld þeirra verði greidd á tímabilinu sem nauðasamningurinn tekur til. Því muni þeir breyta kröfum sínum í hlutafé þegar þar að kemur. - þsj / sjá síðu 8
Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira