Methagnaður hjá IKEA í fyrra 14. janúar 2011 10:45
Sænska verslunarkeðjan IKEA, sem rekur 283 fyrirtæki í 26 löndum, skilaði methagnaði á síðasta ári. Samtals nam hagnaðurinn 2,7 milljörðum evra eða um 400 milljörðum kr. Fjallað er um málið í Dagens Industri. Þar kemur fram að þessi hagnaður hafi náðst þrátt fyrir tugmilljarða kr. tap af rekstri IKEA í Rússlandi. Hagnaðurinn í fyrra var um 6,1% meiri en árið áður. Mikael Ohlsson forstjóri IKEA er ánægður með árið, segir það gott fjárhagslega þrátt fyrir að markaðsaðstæður hafi verið erfiðar í mörgum löndum. Í uppgjöri ársins kemur fram að afskriftir IKEA á síðasta ári námu 6 milljörðum sænskra kr. eða yfir 100 milljörðum kr. Stór hluti þeirra afskrifa eru vegna tveggja verslunarmiðstöðva í Pétursborg í Rússlandi. Báðir verslunarstjórar þeirra voru reknir í fyrra vegna gruns um spillingu.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira