Rúm 10% heimila eru í vanskilum með húsnæðislán sín 28. október 2011 09:15
Lífskjararannsókn Hagstofu Íslands 2011 sýnir að 10,2% heimila höfðu lent í vanskilum með húsnæðislán eða leigu undanfarna 12 mánuði og 12,4% heimila höfðu lent í vanskilum með önnur lán á sama tímabili. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að árið 2011 áttu 51,5% heimila erfitt með að ná endum saman, 31,6% heimila töldu húsnæðiskostnað þunga byrði og 15,2% heimila taldi greiðslubyrði annarra lána en húsnæðislána/leigu vera þunga. Tæp 40% heimila gátu ekki mætt óvæntum útgjöldum að upphæð 160 þúsund með þeim leiðum sem þau venjulega nýta til að standa undir útgjöldum. Þegar heildarmyndin er skoðuð var fjárhagsstaða heimilanna heldur verri árið 2011 en næstu ár á undan. Helsta undantekningin frá því er að greiðslubyrði og vanskil annarra lána en húsnæðislána hefur minnkað frá árinu 2010. Þegar horft er til heimilisgerðar kemur í ljós að einstæðir foreldrar voru helst í fjárhagsvandræðum árið 2011. Barnlaus heimili þar sem búa fleiri en einn fullorðinn stóðu best fjárhagslega. Konur sem búa einar voru ólíklegri en aðrir til að lenda í vanskilum með bæði húsnæðislán og önnur lán. Við greiningu eftir meðalaldri fullorðinna einstaklinga mátti sjá að heimili með meðalaldurinn 30–39 ára voru í mestum erfiðleikum. Almennt má segja að því hærri sem meðalaldur fullorðinna einstaklinga er á heimilinu því betur virðast heimilin vera stödd fjárhagslega. Hagstofa Íslands hefur gefið út Hagtíðindi þar sem nánar er greint frá niðurstöðum um fjárhagsstöðu heimilanna 2004 til 2011.
Mest lesið Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Viðskipti innlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Sjá meira