Hingað og svo miklu, miklu lengra Ingibjörg Kristleifsdóttir skrifar 17. ágúst 2011 06:45 Það vita allir hvernig staðan í rekstri samfélagsins er og leikskólakennarar hafa lagt sitt af mörkum þegar rekstraraðilar hafa skorið niður. Leikskólakennarar taka á sig höggin vegna fækkunar stjórnenda, skerðingar á afleysingu, niðurskurðar í kaupum á námsgögnum og annarra kreppuviðbragða og nota alla sína orku til þess að forða því að áhrifin lendi á börnunum. Að það skuli þurfa að verja sjálfsvirðingu stéttarinnar og gæði leikskólastarfs með því að boða til verkfalls til að ná fram sanngjörnum kröfum er hreint með ólíkindum. Það eru engin rök fyrir því að leikskólakennarar búi við verri kjör en aðrir kennarar. Dýrmæti viðfangsefnisins og langtímaáhrif fyrir samfélagið eru jafnmikil eða meiri í leikskólum en á öðrum skólastigum. Getur það verið að einhvern langi til þess að segja það hreint út að leikskólastarf snúist um geymslu fyrir börn? Nei, við erum komin miklu lengra í hugsun en það. Ráðamenn, atvinnurekendur og að sjálfsögðu foreldrar vita jafn vel og skólafólk að framtíðin býr í leikskólanum og að það er skylda okkar að bjóða aðeins upp á það besta sem þekkist í aðbúnaði og menntun. Við verðum og eigum að velja leið til betri framtíðar. Kennarar í leikskólum jafnt og á öðrum skólastigum eiga að hafa bestu menntun sem völ er á og það á að gera ýtrustu kröfur um mannkosti og hæfileika þeirra sem komast að í kennaranám. Til þess verða kjör og starfsumhverfi að vera framúrskarandi góð. Má nefna til samanburðar að í Finnlandi, þar sem kennarastarfið nýtur verðskuldaðrar virðingar, komast að í kennaranám einungis 15% þeirra sem sækja um. Fyrsta skrefið á leið til betri framtíðar er að semja við leikskólakennara um þær hógværu kröfur sem þeir gera og halda síðan strax áfram við að finna leiðir til þess að gera enn betur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kerfislægt rán um hábjartan dag: Þegar silkihúfurnar brenna framtíðina Sigurður Sigurðsson Skoðun Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson Skoðun Fjárfestum í börnum Pétur Marteinsson Skoðun Íslendingar sem ég hef hitt þegar ég reyni að tala íslensku Valerio Gargiulo Skoðun Hvað kom fyrir þig í fyrsta kafla ævisögu þinnar? Diljá Ámundadóttir Zoega Skoðun Getnaðarsigur og fullnægjandi árangur María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Er til ósýnileg fötlun? Arnar Helgi Lárusson Skoðun Þegar hávaðinn ræður ferðinni Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Skrefin við lok grunnskóla Arnar Þorsteinsson,Guðrún Helga Ástríðardóttir,Svanhildur Svavarsdóttir Skoðun Miðflokkurinn í Kópavogi treystir konum Thelma Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Miðflokkurinn í Kópavogi treystir konum Thelma Árnadóttir skrifar Skoðun Afnemum vaxtarmörk í Hafnarfirði - Byggjum fyrir fólkið Arnhildur Ásdís Kolbeins skrifar Skoðun Þið eruð bara eins og hlaupár Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Jafnrétti er ákvörðun Ása Björk Jónsdóttir,Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Krýsuvíkursamtökin 40 ára Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Skrefin við lok grunnskóla Arnar Þorsteinsson,Guðrún Helga Ástríðardóttir,Svanhildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Netvarnir í gervigreindum heimi Guðmundur Arnar Sigmundsson skrifar Skoðun Hvað kom fyrir þig í fyrsta kafla ævisögu þinnar? Diljá Ámundadóttir Zoega skrifar Skoðun Er til ósýnileg fötlun? Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Kerfislægt rán um hábjartan dag: Þegar silkihúfurnar brenna framtíðina Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Menntamál ættu ekki að vera pólitískt þrætuefni Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Við vitum betur – en gerum ekki nóg Eva Einarsdóttir skrifar Skoðun Getnaðarsigur og fullnægjandi árangur María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Fjárfestum í börnum Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Leikurinn er ekki tapaður Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Börnin geta ekki beðið Sigurveig Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Réttur barna til menntunar Salvör Nordal skrifar Skoðun Grundarreitur í gamla Hveragerði - byggjum rétt Arnar H. Halldórsson skrifar Skoðun Inngilding og þátttaka fatlaðra barna Snæfríður Þóra Egilson skrifar Skoðun Af hlutleysisstefnu ríkisútvarpsins og falleinkunn fjármálaráðs Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson skrifar Skoðun Verk að vinna Elsa María Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Foreldrahús lokar 1. maí! Viljum við það? Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar Skoðun Meirihluti fólks með fötlun í Bretlandi styður rétt til dánaraðstoðar Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Íslendingar sem ég hef hitt þegar ég reyni að tala íslensku Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Öruggt húsnæði jafngildir mannréttindum Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Engin fyrirtæki engin þjónusta Guðný María Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Við erum í sama liðinu skrifar Skoðun Þegar hávaðinn ræður ferðinni Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Gefum loforð í sumargjöf Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Það vita allir hvernig staðan í rekstri samfélagsins er og leikskólakennarar hafa lagt sitt af mörkum þegar rekstraraðilar hafa skorið niður. Leikskólakennarar taka á sig höggin vegna fækkunar stjórnenda, skerðingar á afleysingu, niðurskurðar í kaupum á námsgögnum og annarra kreppuviðbragða og nota alla sína orku til þess að forða því að áhrifin lendi á börnunum. Að það skuli þurfa að verja sjálfsvirðingu stéttarinnar og gæði leikskólastarfs með því að boða til verkfalls til að ná fram sanngjörnum kröfum er hreint með ólíkindum. Það eru engin rök fyrir því að leikskólakennarar búi við verri kjör en aðrir kennarar. Dýrmæti viðfangsefnisins og langtímaáhrif fyrir samfélagið eru jafnmikil eða meiri í leikskólum en á öðrum skólastigum. Getur það verið að einhvern langi til þess að segja það hreint út að leikskólastarf snúist um geymslu fyrir börn? Nei, við erum komin miklu lengra í hugsun en það. Ráðamenn, atvinnurekendur og að sjálfsögðu foreldrar vita jafn vel og skólafólk að framtíðin býr í leikskólanum og að það er skylda okkar að bjóða aðeins upp á það besta sem þekkist í aðbúnaði og menntun. Við verðum og eigum að velja leið til betri framtíðar. Kennarar í leikskólum jafnt og á öðrum skólastigum eiga að hafa bestu menntun sem völ er á og það á að gera ýtrustu kröfur um mannkosti og hæfileika þeirra sem komast að í kennaranám. Til þess verða kjör og starfsumhverfi að vera framúrskarandi góð. Má nefna til samanburðar að í Finnlandi, þar sem kennarastarfið nýtur verðskuldaðrar virðingar, komast að í kennaranám einungis 15% þeirra sem sækja um. Fyrsta skrefið á leið til betri framtíðar er að semja við leikskólakennara um þær hógværu kröfur sem þeir gera og halda síðan strax áfram við að finna leiðir til þess að gera enn betur.
Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson Skoðun
Skrefin við lok grunnskóla Arnar Þorsteinsson,Guðrún Helga Ástríðardóttir,Svanhildur Svavarsdóttir Skoðun
Skoðun Skrefin við lok grunnskóla Arnar Þorsteinsson,Guðrún Helga Ástríðardóttir,Svanhildur Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Kerfislægt rán um hábjartan dag: Þegar silkihúfurnar brenna framtíðina Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Af hlutleysisstefnu ríkisútvarpsins og falleinkunn fjármálaráðs Brynjar Níelsson skrifar
Skoðun Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson skrifar
Skoðun Meirihluti fólks með fötlun í Bretlandi styður rétt til dánaraðstoðar Ingrid Kuhlman skrifar
Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson Skoðun
Skrefin við lok grunnskóla Arnar Þorsteinsson,Guðrún Helga Ástríðardóttir,Svanhildur Svavarsdóttir Skoðun