Vaxtahækkunin í takt við spá greiningar Íslandsbanka 17. ágúst 2011 10:03
Ingólfur Bender forstöðumaður greiningar Íslandsbanka segir að ákvörðun Peningastefnunefndar Seðlabankans um að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur var í takti við þeirra spá. Aðrar opinberar spár gerðu ráð fyrir óbreyttum vöxtum. „Peningastefnunefndin rökstyður ákvörðun sína á þann hátt sem við reiknuðum með þ.e. með því að verðbólguhorfur hafa versnað og að hætta er á að hærri verðbólguvæntingar festi verðbólguna í sessi," segir Ingólfur. Verðbólgan er nú 5%, hefur aukist umtalsvert á þessu ári og er langt yfir verðbólgumarkmiði bankans. Verðbólgan stefnir hærra á næstu mánuðum og spáir bankinn því að hún verði 6,8% á fyrsta ársfjórðungi næsta árs en hjaðni svo aftur á næsta ári og verði komin í verðbólgumarkmið bankans á þriðja ársfjórðungi árið 2013. Peningastefnunefndin gefur til kynna í yfirlýsingu sinni sem birt var í morgun að frekari vaxtahækkana megi vænta á næstunni. Segja þeir að til þess að draga úr hættu á því að hærri verðbólguvæntingar og veikt gengi krónunnar festi of mikla verðbólgu í sessi og til að sporna gegn aukinni verðbólgu og hugsanlegum þrýstingi á gengi krónunnar kunni að vera þörf á því að hækka vexti frekar. „Við reiknum með því að bankinn muni hækka vexti sína um 0,5 prósentur til viðbótar fyrir lok árs," segir Ingólfur.
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira