Fjárfesting dróst saman 11. janúar 2011 05:00 Mest hægði á efnahagslífinu í Þýskalandi Á þriðja fjórðungi síðasta árs mældist hagvöxtur 0,7 prósent í Þýskalandi samanborið við 2,3 prósent á öðrum ársfjórðungi.
Hagvöxtur í ríkjunum sextán sem mynda evrusvæðið varð minni á þriðja fjórðungi síðasta árs en spáð hafði verið. Það dró úr fjárfestingu og neysla almennings jókst minna en spár gerðu ráð fyrir. Eurostat, Hagstofa Evrópusambandsins, hafði gert ráð fyrir 0,4 prósenta hagvexti á þriðja fjórðungi ársins 2010 en þegar upp var staðið reyndist hann 0,3 prósent. Það er mun minna en sá 1 prósents vöxtur sem mældist á öðrum fjórðungi. Til samanburðar varð hagvöxtur í Bandaríkjunum 0,6 prósent og í Japan 1,1 prósent á þriðja ársfjórðungi. Í öllum ríkjunum sextán dró úr hagvexti milli fjórðunga en Grikkland var þó eina landið þar sem samdráttur mældist. Hagkerfi landsins dróst saman um 1,3 prósent, sem var meiri samdráttur en spáð hafði verið. Þegar litið er til allra 27 landa Evrópusambandsins mældist hagvöxtur 0,5 prósent, sem er í samræmi við spár en hálfu minna en sá 1 prósents hagvöxtur sem mældist þar á öðrum fjórðungi ársins. Fyrir helgi voru einnig birtar tölur um atvinnuleysi sem sýna að 10,1 prósent vinnuafls í löndum ESB var án atvinnu í nóvembermánuði og hefur atvinnuleysi ekki mælst meira í þeim mánuði frá því um mitt ár 1998. - pg
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira