Létu Glitni lána Byr til þess að tryggja framhaldslíf FL Group 11. júlí 2011 09:55 Jón Ásgeir Jóhannesson og Jón Sigurðsson á fundi FL Group.
Eignarhaldsfélagið FL Group, þá stærsti eigandi Glitnis, fékk þrjá milljarða lánaða frá sparisjóðnum BYR í lok mars árið 2008. Athygli vekur að Glitnir lánaði BYR þrjá milljarða á móti. Svo virðist sem að um flókna fléttu hafi verið að ræða þar sem tilgangurinn var að veita FL Group framhaldslíf, en félagið átti í gríðarlegum erfiðleikum á þessum tíma. Það er DV sem greinir frá því í dag að Glitnir hafi lánað BYR þrjá milljarða, sem endaði á því að BYR lánaði FL Group peninginn. FL Group var á þessum tíma stærsti hluthafi Glitnis. Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis var Glitnir búinn að lána FL Group svo mikið að bankinn gat ekki lánað félaginu meira vegna reglna um stórar áhættuskuldbindingar. Því gat FL Group ekki gengið óhindrað í hirslur bankans, eins og eigendur hafa verið sakaðir um af slitastjórn bankans. Svo virðist sem skapandi hugsun hafi orðið ofan á. Í frétt DV kemur fram að lánafyrirgreiðslan hafi farið fram 30. mars 2008. Í tölvupósti sem blaðið hefur undir höndum segir: „Eins og fram hefur komið í samtölum þá er samningur okkar við Glitni forsenda þessa samnings og honum hefur ekki verið lokið." Byr lánaði FL Group því aðeins vegna þess að sparisjóðurinn fékk jafnhátt lán frá Glitni á móti. Í DV segir að það veki athygli að Byr kom þessari ábendingu á framfæri við FL Group en ekki Glitni, enda eru engin bein samskipti á milli Byrs og Glitnis í þeim gögnum sem DV hefur undir höndum. FL Group virðist því hafa séð alfarið um samningaviðræðurnar við Byr vegna milljarða króna láns frá Glitni. Þegar málið var borið undir Jón Ásgeir Jóhannesson, einn af eigendum FL Group, benti hann á Jón Sigurðsson, þáverandi forstjóra félagsins.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira