Össur hf. lyfti lífeyrissjóðum yfir 2.000 milljarða markið 11. júlí 2011 12:20
Eignir lífeyrissjóðanna eru komnar yfir 2.000 milljarða kr. markið og segja má að kaup þeirra á stórum hlut í Össuri hf. hafi m.a. ýtt þeim yfir þetta mark. Einnig spilar aukning á erlendum eignum sjóðanna inn í dæmið. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að aukninguna á innlendum hlutabréfum í safni lífeyrissjóðanna má að mestu leyti rekja til kaupa sumra þeirra á talsvert stórum hlut í Össuri af Eyri invest, sem tilkynnt var um í lok maímánaðar. Til að mynda tilkynntu tveir af stærstu lífeyrissjóðum landsins, Lífeyrissjóður verslunarmanna og Gildi, um kaup á bréfum fyrir samtals 4 milljarða kr. í maílok, miðað við markaðsverð á þeim tíma. Alls seldi Eyrir bréf fyrir u.þ.b. 9 milljarða kr. að markaðsverði og trúlega hafa fleiri lífeyrissjóðir verið meðal kaupenda bréfanna þótt þeir hafi ekki verið tilkynningaskyldir um kaup sín eins og framangreindir sjóðir. Aukningu á erlendri verðbréfaeign sjóðanna má að hluta skýra með 1,5% veikingu krónunnar í maímánuði. Aukning á eign í ríkisbréfum er hins vegar athyglisverð í ljósi þess að samkvæmt Markaðsupplýsingum Lánamála voru lífeyrissjóðir atkvæðalitlir í ríkisbréfaútboðum maímánaðar. Þar sem kúfurinn af ríkisbréfaeign sjóðanna er í óverðtryggðum bréfum, og verðbólga hefur því lítil áhrif á höfuðstól þeirra, virðast þeir hafa verið nokkuð stórtækir kaupendur á eftirmarkaði í maímánuði. Í maílok námu erlendar eignir lífeyrissjóða 497 milljörðum kr., sem samsvarar rétt tæpum fjórðungi af heildareignum þeirra. Á sama tíma voru tæplega 59% eigna sjóðanna í innlendum skuldabréfum og verðbréfasjóðum, eða sem nemur alls ríflega 1.177 milljörðum kr. Þar af nam eign sjóðanna í íbúðabréfum og forverum þeirra rúmlega 584 milljörðum kr., og að viðbættum sjóðfélagalánum sjóðanna sjálfra voru 760 milljarðar kr., sem samsvarar 38% af eignum lífeyrissjóða í formi verðtryggðra húsnæðisskuldabréfa. Lífeyrissjóðirnir eru því sem fyrr beint og óbeint langstærstu lánardrottnar íslenskra húseigenda, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira