Vextir ekki hækkaðir vegna minni verðbólgu og styrkingu krónunnar Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 21. september 2011 11:17 Már Guðmundsson seðlabankastjóri mynd úr safni
Seðlabanki Íslands ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum þvert á spár greiningaraðila. Minni verðbólga í ágúst en búist hafði verið við, áframhaldandi styrking gengis krónunnar og lakari horfur í heimsbúskapnum eru meðal ástæða þess að vextir voru ekki hækkaðir segir Seðlabankastjóri. Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti um ákvörðun sína í morgun en áður höfðu helstu greiningaraðilar spáð hækkun stýrivaxta um 0,25 til 0,5 prósentustig. Nefndin segir nýjustu hagtölur staðfesta uppfærða spá bankans frá því í ágúst, það er að vöxtur framleiðslu og atvinnu sé hafinn og horfur séu á að verðbólga muni um nokkurt skeið verða töluvert yfir verðbólgumarkmiði bankans. Því sé við hæfi að halda áfram að draga úr slaka peningastefnunnar. Þá segir nefndin að hræringar á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og vísbendingar um veikari alþjóðlegan hagvöxt hafi skapað óvissu um innlendan hagvöxt og verðbólguhorfur. Hætta á neikvæðum áhrifum á innlendan þjóðarbúskap hafi því aukist frá síðasta fundi peningastefnunefndar í ágúst. Verðbólguhorfur benda þó til þess að til lengri tíma litið sé við hæfi að halda áfram að draga úr slaka peningastefnunnar, eins og byrjað var á í ágúst. Lítil hætta er á að hófleg vaxtahækkun stöðvi efnahagsbatann. Minni verðbólga í ágúst en búist hafði verið við, áframhaldandi styrking gengis krónunnar og lakari horfur í heimsbúskapnum gera peningastefnunefndinni hins vegar kleift að halda vöxtum óbreyttum nú. Nefndin telur enn að til þess að sporna gegn aukinni verðbólgu kunni að vera nauðsynlegt að hækka vexti frekar. Ákvarðanir í peningamálum munu þó sem fyrr taka mið af nýlegri þróun og horfum.
Mest lesið Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Neytendur Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Atvinnulíf „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent Þungur róður hjá fyrirtækjum en undirstöðurnar sterkar Framúrskarandi fyrirtæki Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent Malasar í samstarf við GreenFish Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Sjá meira
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent