Viðskipti innlent

Verð á ótryggðri raforku hækkar um 80-100%

Ljóst er orðið að gífurlegar hækkanir hafa orðið á ótryggðri raforku frá orkusölum. Hækkunin nemur 80-100% að því er segir á vefsíðu Orkuvaktarinnar.

„Eins og Orkuvaktin benti á í júlí var öllum samningum um ótryggða raforku sagt upp frá og með áramótum af hálfu orkusala vegna fyrirhugaðra breytinga á skilmálum Landsvirkjunar.  Þá strax komu fram vísbendingar um að talsverðar hækkanir væru í pípunum.  Nú er orðið ljóst að hækkunin verður gríðarleg, líklega á bilinu 80 - 100% hjá flestum notendum,“ segir á vefsíðunni.

„Skilmálar breytast einnig og verður notendum gert að skila inn áætlunum á einhverju formi sem standa verður við.  Skeiki áætlun um meira en sem nemur tilteknum vikmörkum, er notanda gert að greiða álag.  Ef notandi getur af einhverjum ástæðum ekki nýtt þá orku sem hann áætlaði, er hann samt sem áður skuldbundinn til að greiða fyrir hana.  Það þarf því lítið útaf að bregða til að hækkunin verði í raun enn meiri.  Svo ekki sé minnst á þá vinnu sem leggja þarf í áætlanagerð.“

Ennfremur segir að þetta séu talsvert óvænt tíðindi og skilmálar af þessu tagi eru algjör nýmæli á almennum markaði eftir því sem Orkuvaktin kemst næst.  Orkusölum hefur verið gert að skila inn ítarlegum áætlunum um orkusölu frá innleiðingu samkeppni á raforkumarkaði og er þessi aðferðarfræði væntanlega þaðan komin.

„Þrátt fyrir þessar hækkanir er ótryggða orkan enn talsvert hagstæðari en forgangsorka í raforku og einnig talsvert ódýrari en notkun olíu, en hún er víða notuð í iðnaði t.d. við gufuframleiðslu. Það jákvæða í þessu öllu saman er sú staðreynd að nú, eftir um 9 ára hlé gefst nýjum aðilum kostur á að nýta þessa ótryggðu orku.  Orkuvaktin hvetur því iðnfyrirtæki til að skoða þennan kost,“ segir á vefsíðu Orkuvaktarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×