Fóru fram á varðhald vegna gruns um kerfisbundna markaðsmisnotkun Magnús Halldórsson skrifar 1. desember 2011 13:39 Karl Georg Sigurbjörnsson hrl., lögmaður Elmars Svavarssonar, fyrrum miðlara hjá Glitni.
Dómari í Héraðsdómi Reykjavíkur féllst ekki á gæsluvarðhaldskröfu embættis sérstaks saksóknara, er beindist að Elmari Svavarssyni, fyrrum miðlara hjá Glitni, þar sem dómari taldi ekki sannanir liggja fyrir um að hann hefði átt þátt í kerfisbundinni markaðsmisnotkun, eins og honum var gefið að sök í kröfugerðinni. „Það var einfaldlega ekki fallist á að fyrir lægju sannanir fyrir því að hann hefði brotið lög. Þar á meðal var ekki fallist á að hann hefði átt aðild að kerfisbundinni markaðsmisnotkun, sem ég tel reyndar að séu fráleitar ásakanir," segir Karl Georg Sigurbjörnsson hrl., lögmaður Elmars.Elmar Svavarsson sést hér fara frá héraðsdómi, frjáls ferða sinna. Dómari féllst ekki á að hann hefði átt aðild að þeim meintu brotum sem nefnd voru í kröfugerð sérstaks saksóknara, m.a. kerfisbundinni markaðsmisnotkun yfir margra ára tímabil.Í kröfugerð embættis sérstaks saksóknara kemur fram að rannsóknin beinist m.a. að markaðsmisnotkun allt frá árinu 2004 og fram á árið 2008, samkvæmt heimildum fréttastofu. Þrír fyrrverandi starfsmenn Glitnis voru í gærkvöldi úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald. Það eru Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri bankans, Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta, og Ingi Rafnar Júlíusson, fyrrverandi starfsmaður markaðsviðskipta. Eins og greint var frá á Vísi fyrr í dag, kærðu tveir þeirra sem úrskurðaðir voru í varðhald, strax niðurstöðu héraðsdóms til Hæstaréttar. Ekki er útilokað að þeir geri það allir, þar sem kærufresturinn er innan þriggja sólarhringa samkvæmt lögum. Í tilkynningu frá embætti sérstaks saksóknara frá því í gær kemur fram að rannsókn málsins tengdist einkum fjórum þáttum. Þeir eru: 1. Kaup eigin viðskipta Glitnis á hlutabréfum útgefnum af bankanum á verðbréfamarkaðinum. Einnig kaup bankans og ráðstöfun á hlutabréfum útgefnum af FL Group. 2. Lánveitingar til ýmissa félaga vegna kaupa á hlutabréfum útgefnum af bankanum í lok árs 2007 og á árinu 2008. Upphaflegur höfuðstóll nefndra lánveitinga er talinn nema samtals tæpum 37 milljörðum króna. 3. Viðskipti með framvirka samninga í hlutabréfum útgefnum af bankanum. 4. Sölutrygging Glitnis á 15 milljarða hlutafjárútboði FL Group áramótin 2007 og 2008. Til rannsóknar er grunur um meint brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga í tengslum við ráðstafanir á fjármunum Glitnis, brot á lögum um verðbréfaviðskipti, lögum um fjármálafyrirtæki, lögum um ársreikninga og lögum um bókhald.
Mest lesið Greiðsluáskorun Samstarf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Hulda til Basalt arkitekta Viðskipti innlent Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Viðskipti innlent Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Viðskipti erlent Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Sjá meira