Þriðjungur fyrirtækja er í viðvarandi mínus 1. júní 2011 00:01 Már Guðmundsson
Tryggvi Pálsson Óli Kristján Ármannsson skrifar Töluverð óvissa ríkir um gæði eignasafna bankanna og þar með um raunverulegt eiginfjárhlutfall þeirra. Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir þó flest benda til þess að þeir standi undir kröfum Fjármálaeftirlitsins um eigið fé. Seðlabankinn kynnti í gær skýrsluna Fjármálastöðugleika 2011. Seðlabankastjóri og Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs bankans, kynntu skýrsluna. „Vanskil mælast mikil en erfitt er þó að túlka mæld vanskilahlutföll, þar sem ekki er ljóst að hve miklu leyti þau endurspegla skuldavanda sem endar í þroti, tafir á endurskipulagningu skulda eða ákvörðun sumra skuldara um að setja skuldir í vanskil vegna deilna um lagalegan grundvöll lánanna,“ segir Már og kveður enn mikið verk óunnið varðandi endurskipulagningu skulda fyrirtækja og að nokkru leyti heimila. „Það viðheldur óvissu um gæði eigna bankanna og hamlar fjárfestingu og hagvexti, sem hefur síðan aftur neikvæð áhrif á eignasafn bankanna. Eitt mikilvægasta verkefni næstu mánaða er framvinda þessarar endurskipulagningar.“ Seðlabankinn bendir einnig á í skýrslu sinni að Íbúðalánasjóður komi til með að þurfa aukinn ríkisstuðning, eigi hann að ná markmiðum um eiginfjárhlutfall. Bent er á að ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hafi samþykkt framlag til sjóðsins gegn því að fyrir septemberlok næstkomandi lægi fyrir áætlun um endurskipulagningu sjóðsins. „Í ljósi þeirra miklu umsvifa sem Íbúðalánasjóður hefur og margvíslegrar áhættu sem tengist þeim er margt sem mælir með því að starfsemi Íbúðalánasjóðs eigi að falla undir lög um fjármálafyrirtæki, þótt tilskilið lágmark eigin fjár gæti verið annað en hjá öðrum fjármálafyrirtækjum,“ segir í skýrslu bankans. Með því yrði fjárhagslegt eftirlit með sjóðnum á sama grunni og eftirlit með bönkum og sparisjóðum. „Slíkt myndi auka aðhald með starfsemi sjóðsins.“ Í skýrslu bankans kemur fram að frá hruni hafi vanskil fyrirtækja aukist verulega. Nú séu tæplega 6.500 fyrirtæki á vanskilaskrá og hafi ekki verið fleiri frá því í mars 2009. Fjárhæð fyrirtækjalána í vanskilum í lok mars síðastliðins námu um 34 prósentum af lánum til þeirra, en um helmingur lána í vanskilum er sagður í endurskipulagningarferli. Að því loknu gætu þau færst í flokk lána í skilum. „Því ríkir veruleg óvissa um virði að minnsta kosti fjórðungs útlána til fyrirtækja,“ segir í skýrslu Seðlabankans. Um þriðjungur fyrirtækja er sagður hafa haft viðvarandi neikvætt eigið fé, en almennt virðist fyrirtæki hafa brugðist við ytri aðstæðum. „Rekstrarafgangur fyrirtækja með jákvætt eigið fé hefur aldrei verið meiri frá árinu 1997.“ Sömuleiðis kemur fram að vanskil heimilanna hafi stóraukist frá hruni og nemi nú um ellefu prósentum af heildarútlánum stærstu viðskiptabankanna þriggja til heimila. Þó séu teikn á lofti um að fjárhagsstaða heimila fari batnandi. Kaupmáttur sé nú svipaður og hann var árið 2003.
Mest lesið Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Sjá meira