Tæplega 2000 árangurslaus fjárnám 1. júní 2011 12:25 Már Guðmundsson, seðlabankastjóri. Mynd/Pjetur
Gert var árangurslaust fjárnám í hátt í tvö þúsund fyrirtækjum á fyrstu þremur mánuðum ársins. Það er meira en tvöföldun frá árinu áður Þetta kemur fram í nýjasta hefti Fjármálastöðugleika Seðlabankans, en þar segir að sterkar vísbendingar séu um aukna innheimtu, sem kunni að vera nauðsynleg til að flýta slitum á ólífvænlegum fyrirtækjum. Á seinni helmingi síðasta árs voru gerð rétt tæplega 3.500 árangurslaus fjárnám hjá fyrirtækjum, samanborið við um þúsund á sama tíma árið 2009. Fyrstu mánuðir þessa árs benda sömuleiðis til aukinnar innheimtu, en í janúar, febrúar og mars voru gerð rétt tæplega 2000 árangurslaus fjárnám, sem er um 160% aukning frá árinu áður. Fjöldi gjaldþrota er um 430 á sama tímabili, sem bendir til þess að innheimtu ljúki oft með árangurslausu fjárnámi, án þess að fyrirtæki séu tekin til gjaldþrotaskipta. Hugsanlega er það gert til að forðast kostnað við gjaldþrotaskiptin. Eins og Vísir greindi frá í gær eru fyrirtækjalán í alvarlegum vanskilum um 45% af heildarvirði útlána til fyrirtækja, en í fjármálastöðugleikanum er margt sem bendir til þess að mörg heimili séu sömuleiðis ofskuldsett. Tæplega 25 þúsund einstaklingar voru á vanskilaskrá í lok apríl 2011 og hefur sá fjöldi farið hratt vaxandi síðustu mánuði. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að myndin af skuldum fyrirtækja sé skekkt, meðal annars þar sem stök alþjóðleg fyrirtæki starfa hér á landi og bera miklar skuldir ein og sér. „Nú varðandi heimilin þá er náttúrulega ljóst að þau verða skuldsettari fyrir góðærið má segja og það mun þýða það að einkaneyslan verður minna heldur en ella. En það er ekki þarf með sagt að hér geti ekki orðið hagvöxtur og það er þegar komin af stað hagvöxtur. Bara muna það næst þegar við tökum lán þá þarf að greiða það niður.“
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Fleiri fréttir Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Sjá meira