Viðskiptajöfnuður óhagstæður um 48 milljarða 1. júní 2011 16:20
Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 48,3 milljarða kr. á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 58,4 milljarða kr. óhagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 24,5 milljarðar kr. og 2,2 milljarða kr. halli var á þjónustuviðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var hinsvegar neikvæður um 70,5 milljarða kr. Þetta kemur fram á vefsíðu Seðlabankans. Þar segir að halla á þáttatekjum á fyrsta ársfjórðungi má eins og áður rekja til innlánsstofnana í slitameðferð. Reiknuð gjöld vegna þeirra námu 44,1 milljarða kr. og tekjur 5,5 mjörðum kr. Jöfnuður þáttatekna án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var óhagstæður um 31,9 milljarða kr. og viðskiptajöfnuður 9,6 milljarða kr. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 4.202 milljörðum kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 14.272 milljörðum kr. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 10.070 milljarða kr. og hækka nettóskuldir um 290 milljarða kr. á milli ársfjórðunga. Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð námu eignir þjóðarbúsins 2.515 milljarða kr. og skuldir 3.327 milljörðum kr. og var hrein staða þá neikvæð um 812 milljarða kr. Gerð hefur verið breyting á framsetningu á stöðu þjóðarbúsins án innlánsstofnanna í slitameðferð með því að telja beina erlendra fjármunaeign með eignum þeirra. Það hefur ekki verið mögulegt fyrr m.a. vegna skorts á nákvæmum upplýsingum og flókins utanumhalds um erlendar fjárfestingar. Vegna þessa teljast eignir þeirra hærri en áður hefur verð sett fram hér. Það hefur þau áhrif að erlend staða þjóðarbúsins án innlánsstofnanna í slitameðferð telst verri sem nemur beinni fjármunaeign þeirra. Flest fyrirtæki í beinni fjárfestingu hafa lokið við uppgjör ársins 2010 og hafa tölur ársins verið endurskoðaðar miðað við nýjustu upplýsingar frá þeim. Hækkun á fjármunaeign innlendra aðila erlendis og erlendra aðila innanlands á 4. ársfjórðungi 2010 má að stórum hluta rekja til endurskipulagningar skulda. Það sem áður tilheyrði lánaskuld í beinni fjárfestingu innlendra aðila erlendis flyst yfir í fjárfestingu erlendra aðila innanlands. Endurskipulagningin hefur ekki áhrif á hreina erlenda stöðu. Einnig var hlutafjáreign innlendra aðila erlendis á árinu 2010 hærri en áður var áætlað og nær sú endurskoðun aftur til fyrsta ársfjórðungs 2010.
Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira