Samningar um þriðja kísilverið langt komnir 16. desember 2011 19:00 Frá Húsavík.
Fyrirtækið Thorsil hefur sótt um lóð á Bakka undir kísilver og er langt komið með orkusamning við Landsvirkjun. Þetta er þriðja verksmiðjan af þessu tagi sem nú er í farvatninu hérlendis og gæti skapað 360 framtíðarstörf á Norðurlandi. Einkaþotan sem lenti á Akureyrarflugvelli í vikunni með fulltrúa þýska félagsins PCC var skýr vísbending um þá alvöru sem komin er í undirbúning kísilverksmiðju þess félags á Húsavík. En Þjóðverjarnir eru ekki einu útlendingarnir sem áforma uppbyggingu í kísilmálmiðnaði hérlendis. Íslenska kísilfélagið, með bandaríska fyrirtækið Globe Speciality Metals sem bakhjarl, er komið lengst, - undirritaði samninga í febrúar á þessu ári um verksmiðju í Helguvík og stefnir nú að því að hefja framkvæmdir þar fljótlega eftir áramót. Þriðja félagið, sem vill hasla sér völl á þessum vettvangi hérlendis, Thorsil, undirritaði raunar samkomulagsramma við Orkuveitu Reykjavíkur fyrir nærri tveimur árum en þá hugðist félagið reisa kísilverksmiðjuna í Þorlákshöfn, með kandíska félagið Timminco sem aðalfjárfesti. Eftir að ljóst varð í vor að Orkuveitan gæti ekki útvegað Thorsil 85 megavött raforku sneri félagið sér til Landsvirkjunar, og samkvæmt heimildum Stöðvar 2 liggur nú fyrir rammi að samningi milli félaganna um raforkukaup frá nýjum orkuverum í Þingeyjarsýslum. Thorsil hefur einng sótt um lóð á Bakka með það í huga að framkvæmdir hefjist eftir rúmt ár og greint þingnefnd frá þeim áformum sínum að verksmiðjan verði gangsett snemma árs 2015. Þar verði til 160 störf og um 200 afleidd störf.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira