Aflaverðmætið eykst um milljarð milli ára 23. júní 2011 09:04
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 37,4 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2011 samanborið við 36,4 milljarða kr. á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 1 milljarð kr. eða 2,8% á milli ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflaverðmæti botnfisks var í lok mars orðið 23,3 milljarðar kr. og dróst saman um 15,4% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 27,6 milljörðum króna. Verðmæti þorskafla var um 13,8 milljarðar kr. og dróst saman um 9,6% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam tæpum 3,4 milljörðum kr. og dróst saman um 28,7%, en verðmæti karfaaflans nam 2,8 milljörðum kr., sem er 27,6% samdráttur frá fyrstu þremur mánuðum ársins 2010. Verðmæti ufsaaflans dróst saman um 14,9% milli ára í 1,2 milljarða kr. Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 2,8 milljörðum króna í janúar til mars 2011, sem er 31% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 68,3% milli ára og nam tæpum 10,8 milljörðum kr. Má rekja þá verðmætaaukningu til aukins loðnuafla. Verðmæti hans nam 8,7 milljörðum króna og jókst um 248% milli ára. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 21,5 milljörðum króna og jókst um 27,1% frá árinu 2010. Aflaverðmæti sjófrystingar var tæpir 8,8 milljarðar kr. sem er 16% samdráttur milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 11% milli ára og var um 5,4 milljarðar kr.
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Mjölnismaður og lögreglumenn opna nýja bardaga- og líkamsræktarstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Sjá meira