Aflandsgengið leitar jafnvægis við skráða gengið 23. júní 2011 13:41
Aflandsgengi krónunnar stendur nú í 210 krónum fyrir evruna, miðað við kaup, og svo virðist sem það sé að leita að jafnvægi við skráð gengi krónunnar innanlands. Frá því í lok febrúar s.l. hefur aflandsgengið styrkst um 29% en á móti hefur innanlandsgengið veikst um 3,6% á sama tímabili. Greining Íslandsbanka fjallaði um málið í Morgunkorni sínu í vikunni. Þar kemur fram að gengi krónunnar hefur hækkað verulega á aflandsmarkaði undanfarna mánuði. Mest var hækkunin í aðdraganda gjaldeyrisútboðs Seðlabankans þann 23. maí síðastliðinn en útboðið var liður í afnámi gjaldeyrishaftanna. Fór evran þá úr því að kosta 250 krónur niður í 220 krónur eða að meðalverði samþykktra tilboða í útboði Seðlabankans sem var tæplega 219 krónur. Niðurstaða útboðsins var talin styrkleikamerki fyrir krónuna, þ.e. að erlendir fjárfestar sem ættu krónueignir væru ekki svo óþolinmóðir við að losa sínar krónustöður að þeir tækju hvaða verði sem er. Frá því að niðurstaða útboðsins var kunngjörð hefur evran lækkað enn frekar í verði á þessum markaði og stendur nú í 210 krónum. Þess má geta að í lok febrúar síðastliðinn fór gengi evrunnar á aflandsmarkaði í 271 krónur og hefur krónan því styrkst umtalsvert frá þeim tíma, eða sem nemur um 29%. Viðskipti á aflandsmarkaði með krónur, sem eru viðskipti á milli tveggja erlendra banka með krónur, hafa verið stopul og verðmyndun óstöðug. Er veltan á þessum markaði einungis lítill hluti af heildarveltu með íslenskar krónur. Frá því að gjaldeyrishöftin voru sett á hefur gengi krónunnar á aflandsmarkaði nokkrum sinnum náð tímabundnu jafnvægi á bilinu 190 til 210 krónur, þ.e. nálægt því gengi sem nú er. Þess á milli hefur spurn eftir krónum á þeim markaði nánast horfið og gengið snarlækkað. Var það m.a. ástæða þess að krónan var svo lág í febrúar síðastliðinn. Á innlendum millibankamarkaði með gjaldeyri, sem er markaður með gjaldeyri á milli innlendra banka, hefur veltan verið meiri en á aflandsmarkaði en þó ekki nema lítið brot af því sem hún var fyrir bankahrunið 2008. Ólíkt þróuninni á aflandsmarkaði hefur gengi krónunnar á innlendum markaði verið að gefa eftir undanfarna mánuði en hreyfingin þar er lítil í samanburði við þá sem hefur verið á aflandsmarkaði. Kostar evran þar nú 165 krónur en kostaði fyrir fjórum mánuðum síðan 159 krónur. Nemur veikingin 3,6%. „Gengi krónunnar á innlendum- og aflandsmarkaði hefur því verið að leita í átt til hvors annars undanfarið. Er munurinn nú ekki nema 40% af því sem hann var fyrir fjórum mánuðum, eða 45 krónur á hverja evru í stað 112 krónur. Er þetta afar jákvæð þróun. En þrátt fyrir að munurinn hafi minnkað á gengi krónunnar á þessum tveim mörkuðum er hann enn talsverður, eða sem nemur ríflega 27%,“ segirí Morgunkorninu. „Við núverandi aðstæður væri talsverð hætta á því að gengi krónunnar á álandsmarkaði myndi lækka við afnám gjaldeyrishaftanna niður í það sem það er á aflandsmarkaði og gæti gengi krónunnar við afnám hafta reyndar farið talsvert neðar en það um tíma. Með fleiri skrefum í afnámi hafta má vænta þess að gengi krónunnar á þessum tveimur mörkuðum færist nær hvort öðru og þá vonandi í þá átt að gengi á aflandsmarkaði færist nær því sem það er á innlendum markaði.“
Mest lesið „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Fleiri fréttir „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent