Lækkun á Wall Street eins og spáð hafði verið 8. ágúst 2011 13:46
Verð á hlutabréfum lækkaði við opnun markaða í Bandaríkjunum í dag eins og búist hafði verið við. Matsfyrirtækið Standard & Poors lækkaði lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna í fyrsta sinn í sögunni á föstudaginn eftir að markaðir lokuðu og spár um lækkun gengu eftir. Dow Jones vísitalan lækkaði um tæp tvö prósent í fyrstu viðskiptum dagsins klukkan hálf tvö að íslenskum tíma og Nasdaq vísitalan lækkaði um 3,35 prósent.
Tengdar fréttir Óttast að bandarísk hlutabréf hrynji Hlutabréfamarkaðir í Evrópu hafa lækkað í dag en þó ekki eins mikið og óttast var. Yfirlýsingar Seðlabanka Evrópu um að kaupa skuldabréf verst stöddu ríkjanna réð þar mestu um. Óttast er að bandarísk hlutabréf hrynji við opnun markaða klukkan hálf þrjú. Mikið hefur verið um sviptingar á fjármálamörkuðum í morgun. Í nótt sýndu markaðir í Asíu mikla lækkun, til dæmis lækkaði Nikkei vísitalan í Japan um 2,4 prósent og verð á hlutabréfum í Hong Kong, Suður-Kóreu og á Indlandi lækkaði um þrjú til fimm prósent. Þegar hlutabréfamarkaðir í Evrópu opnuðu klukkan sjö í morgun lækkuðu helstu vísitölur álfunnar til að byrja með en síðan dróg úr lækkuninni þegar líða tók á morguninn og var jafnvel vart við hækkun á sumum mörkuðum. Talið er að yfirlýsingar Seðlabanka Evrópu þar sem gefið er til kynna að bankinn ætli sér að kaupa upp skuldir ríkissjóða álfunnar sem verst eru staddir hafi haft einhver áhrif á órólega fjárfesta. Þá hafa G7 ríkin lýst yfir sameiginlegu átaki til að viðhalda fjármálastöðugleika og efnahagsbata. Yfirlýsingarnar virðast hins vegar ekki hafa dugað til en nú fyrir fréttir sýndu allar helstu vísitölur í Evrópu lækkun um eitt til tvö og hálft prósent en um þrjár klukkustundir eru þar til markaðir loka. 8. ágúst 2011 12:13 Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira
Óttast að bandarísk hlutabréf hrynji Hlutabréfamarkaðir í Evrópu hafa lækkað í dag en þó ekki eins mikið og óttast var. Yfirlýsingar Seðlabanka Evrópu um að kaupa skuldabréf verst stöddu ríkjanna réð þar mestu um. Óttast er að bandarísk hlutabréf hrynji við opnun markaða klukkan hálf þrjú. Mikið hefur verið um sviptingar á fjármálamörkuðum í morgun. Í nótt sýndu markaðir í Asíu mikla lækkun, til dæmis lækkaði Nikkei vísitalan í Japan um 2,4 prósent og verð á hlutabréfum í Hong Kong, Suður-Kóreu og á Indlandi lækkaði um þrjú til fimm prósent. Þegar hlutabréfamarkaðir í Evrópu opnuðu klukkan sjö í morgun lækkuðu helstu vísitölur álfunnar til að byrja með en síðan dróg úr lækkuninni þegar líða tók á morguninn og var jafnvel vart við hækkun á sumum mörkuðum. Talið er að yfirlýsingar Seðlabanka Evrópu þar sem gefið er til kynna að bankinn ætli sér að kaupa upp skuldir ríkissjóða álfunnar sem verst eru staddir hafi haft einhver áhrif á órólega fjárfesta. Þá hafa G7 ríkin lýst yfir sameiginlegu átaki til að viðhalda fjármálastöðugleika og efnahagsbata. Yfirlýsingarnar virðast hins vegar ekki hafa dugað til en nú fyrir fréttir sýndu allar helstu vísitölur í Evrópu lækkun um eitt til tvö og hálft prósent en um þrjár klukkustundir eru þar til markaðir loka. 8. ágúst 2011 12:13