Færsla fjárveitinga á milli ára heimiluð á Akureyri 29. ágúst 2011 11:22 Á myndinni eru, talið frá vinstri: Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, Sigurveig Bergsteinsdóttir, formaður skólanefndar Akureyrarbæjar, Gunnar Gíslason, fræðslustjóri, Hrafnhildur Sigurðardóttir, leikskólafulltrúi, Inda Björk Gunnarsdóttir, formaður félagsmálaráðs, Guðrún Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Soffía Lárusdóttir, framkvæmdastjóri búsetudeildar, og Oddur Helgi Halldórsson, formaður bæjarráðs Akureyrar.
Bæjarráð Akureyrar hefur heimilað færslu fjárveitinga á milli ára í málaflokkum félagsþjónustu og fræðslu- og uppeldismála. Í tilkynningu frá bænum segir að góður rekstur á síðasta ári gefi svigrúm til að færa rekstrarafgang þessara málaflokka yfir á núverandi fjárhagsár og nema upphæðirnar 12 milljónum króna til fjölskyldu- og búsetudeildar og 10 milljónum króna til skóladeildar. „Í 7. kafla um fjárhagsáætlunarferli Akureyrarbæjar er fjallað um færslu fjárveitinga á milli ára. Þar segir að ef rekstrarútgjöld stofnunar séu innan fjárhagsáætlunar geti forstöðumaður óskað eftir því við bæjarráð að rekstrarafgangur ársins af óbundnum liðum verði fluttur á milli ára,“ segir ennfremur en bent á að þetta sé háð því skilyrði að viðkomandi fagnefnd og embættismaður hafi staðfest að þjónustu hafi verið sinnt í samræmi við starfsáætlun og að rekstrarafgangur sé vegna hagræðingar, sparnaðar eða flutnings verkefna á milli fjárhagsára. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, afhenti deildarstjórum skóladeildar og fjölskyldu- og búsetudeildar fjármunina formlega í dag, samtals 22 milljónir króna sem verða færðar yfir á núverandi fjárhagsár. „Við það tækifæri sagði Eiríkur Björn að þótt aðeins væri um að ræða lítið brot af heildarrekstrarútgjöldum þessara málaflokka þá væri færsla þeirra á milli ára hvort tveggja í senn, hvatning til starfsfólks bæjarins um að gera enn betur og um leið þakklætisvottur fyrir vel unnin störf,“ segir að lokum.
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira