Getum sem dæmi um þetta tekið Norðurá með sína 1450 laxa, en þar er veitt á 14 stangir sem gerir 103 laxa á stöngina á tímabilinu. En Elliðaárnar með 716 laxa og 6 stangir (eru 4 í byrjun og enda) er með 119 laxa sem er feykilega góð veiði í báðum ánum.
Tölfræðin er ekki alveg jafngóð í mörgum ánum en það er svo mikið eftir af þessu tímabili að staðan á ánum í dag hefur lítið að segja um lokaniðurstöðuna. Langá sem dæmi á eftir að fá þvílíka sprengju þegar maðkahollin byrja þar í lok ágúst og þanig er það með fleiri ár. Rangárnar eru fyrst að detta í gírinn núna og í ágúst byrjun eru sum hollin að taka langt yfir 100 laxa á DAG!
Hér fyrir neðan er listinn yfir 10 aflahæstu árnar og hér er tengill fyrir þá sem vilja skoða listann í heild sinni. https://angling.is/is/veiditolur/
Hér í þremur aftari dálkunum sérðu veidda laxa, fjölda stanga í ánni og veiðina í fyrra.
Norðurá | 27. 7. 2011 | 1450 | 14 | 2279 |
Blanda | 27. 7. 2011 | 1190 | 19 | 2777 |
Þverá + Kjarará | 27. 7. 2011 | 1002 | 14 | 3760 |
Selá í Vopnafirði | 27. 7. 2011 | 798 | 6 | 2065 |
Haffjarðará | 27. 7. 2011 | 754 | 6 | 1978 |
Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki. | 27. 7. 2011 | 721 | 20 | 6210 |
Elliðaárnar. | 27. 7. 2011 | 716 | 6 | 1164 |
Miðfjarðará | 27. 7. 2011 | 704 | 10 | 4043 |
Langá | 27. 7. 2011 | 678 | 12 | 2235 |
Eystri-Rangá | 27. 7. 2011 | 592 | 18 | 6280 |