Spá 17% aukningu í íbúðasölu á þessu ári 8. júlí 2011 09:30
Íbúðafjárfesting dróst saman um 17% árið 2010, en árið 2011 er reiknað með 17% vexti og gert er ráð fyrir talsverðum vexti út spátímann. Þó er ekki um mikla fjármuni að tefla framan af vegna þess hve lítil íbúðafjárfesting er. Þetta kemur fram í þjóðhagspá Hagstofunnar. Þar segir að átaksverkefni ríkisins Allir vinna, sem felur í sér fulla endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á byggingarstað árin 2011 og 2012, auk skattaívilnunar vegna vinnu sem framkvæmd er á byggingarstað árið 2011, er hvatning til íbúðafjárfestingar. Ríkisstjórnin hefur gefið í skyn í tengslum við gerð kjarasamninga að þetta átak verði framlengt. Velta á fasteignamarkaði hefur vaxið nokkuð stöðugt þó að enn sé hún langt frá því sem mest varð árið 2007, en veltan nær varla því stigi á næstu árum. Hlutur makaskiptasamninga í sölusamningum heldur áfram að lækka sem bendir til skilvirkari markaðar. „Verð hefur styrkst eitthvað það sem af er ári, en raunverð hefur enn ekki hækkað. Ekki er gert ráð fyrir að íbúðaverð hækki að ráði umfram verðlag framan af spátímanum, en gert er ráð fyrir lítilsháttar raunhækkun í lok hans. Landsmönnum verður þá væntanlega aftur farið að fjölga sem ætla má að auki eftirspurn eftir fasteignum. Haldi fasteignamarkaðurinn áfram að styrkjast gæti þessi spá reynst of íhaldssöm,“ segir í þjóðhagsspá Hagstofunnar.
Mest lesið „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent