LS Retail valið í Forsetaklúbb Microsoft 8. júlí 2011 09:52
Í viðurkenningarskyni fyrir framúrskarandi þjónustu og söluafrek hefur íslenska hugbúnaðarfyrirtækið LS Retail ehf. verið valið í Forsetaklúbbinn (President´s Club) hjá Microsoft Dynamics. Í tilkynningu segir að í þennan klúbb fá aðeins inngöngu virkustu samstarfsaðilar Microsoft og árlega hlotnast þessi viðurkenning aðeins þeim 5% söluaðila Microsoft viðskiptalausna sem skilað hafa mestum tekjum af sölu til Microsoft og sýnt fram á mestu söluaukningu á árinu. LS Retail, ásamt öðrum meðlimum Forsetaklúbbsins, verður heiðrað á Microsoft Worldwide Partner Conference í Los Angeles, miðvikudaginn 13. júlí næstkomandi. Á ráðstefnunni gefst samstarfsfyrirtækjum færi á að tengjast hvert öðru og starfsfólki Microsoft, auk þess að fræðast um það nýjasta sem Microsoft hefur uppá að bjóða. Doug Kennedy hjá Microsoft Dynamics, tilkynnti fréttirnar og hrósaði LS Retail fyrir traust samband við viðskiptavini sína og fyrir stöðugan vöxt og yfirburði í viðskiptum. “Við erum afar stolt að hljóta þessa viðurkenningu frá Microsoft fyrir vinnusemi okkar og velgengni sem samstarfsaðili þeirra,” segir Magnús Norðdahl forstjóri LS Retail. “LS Retail hefur náð bestu sölutölum í sögu fyrirtækisins það sem af er árinu 2011, og árið 2010 var það besta í sögu fyrirtækisins. Tilnefningin í President´s Club hjá Microsoft er afrakstur sem mun hvetja okkur áfram til dáða.”
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira