Eyraroddi að seljast í tvennu lagi 18. ágúst 2011 08:00 Aftur eygja Flateyringar von um að sá guli glæði atvinnulífið á staðnum.
Útgerðarfyrirtækið Lotna hefur gengið frá kaupum á fiskvinnsluhúsi og beitningahúsi sem voru í eigu þrotabús Eyrarodda á Flateyri. Þar að auki hefur það leigt bátinn Stjána Ebba og allan þann kvóta sem honum fylgir fram að næsta fiskveiðiári sem reyndar hefst eftir um það bil hálfan mánuð. Sigurður Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Lotnu, segir að kaupin og leigan kosti tugi milljóna. Hann segir enn fremur að ekki standi til að kaupa fiskvinnsluhúsið sem Byggðastofnun eigi veð í en eftir að Eyraroddi fór í þrot bauð Lotna í það hús en Byggðastofnun féllst ekki á kaupin. „Við höfum sniðið okkur stakk eftir vexti og ætlum bara að halda áfram með þá vinnslu sem við erum nú þegar með,“ segir hann. „Við höfum líka séð að reksturinn á öllum húsunum, sem Eyraroddi skilur eftir, er hreinlega of dýr.“ Greint var frá því á vestfirska fréttavefnum BB í gær að tilboð hefði borist í þær eignir sem eftir eru í þrotabúinu, sem er þó stærsti hlutinn. Þar segir að það muni vera frá fyrirtækinu Arctic Fish sem er að hluta í eigu erlendra aðila. Haft er eftir Friðbirni E. Garðarssyni skiptastjóra að samningaviðræður hafi gengið vel og niðurstöðu sé að vænta fljótlega. - jse
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira