Slitastjórn Glitnis skoðar mál á hendur fyrrverandi starfsmönnum Þorbjörn Þórðarson. skrifar 18. ágúst 2011 18:30
Slitastjórn Glitnis hefur til skoðunar málshöfðanir á hendur fyrrverandi starfsmönnum bankans sem fengu lán til hlutabréfakaupa í gegnum eignarhaldsfélög. Fjárhæðirnar hlaupa á milljörðum króna. Í flestum tilvikum verður erfitt að fá kröfurnar greiddar þar sem persónulegum ábyrgðum er ekki til að dreifa. Í umfjöllun rannsóknarnefndar Alþingis um launa- og hvatakerfi bankanna kemur fram að fyrstu samningarnir sem gerðir voru við starfsmenn og stjórnendur Glitnis um kaup á hlutabréfum hafi verið hófstilltir en upphæðirnar hafi hækkað eftir því sem árin liðu. Upphæðir einstakra samninga árin 2003-2008 voru frá um 5 milljónum króna upp í 1,2 milljarða. Rannsóknarnefndin hefur vitneskju um alls 100 samninga sem voru gerðir í þessum tilgangi á árunum 2003-2008 að nafnverði samtals ríflega 15,2 milljarða króna. Heildarlán til starfsmanna Glitnis stóðu í 54 milljörðum króna í september 2008 en höfðu numið 1,6 milljörðum aðeins fjórum árum áður, í janúar 2004. Þessar lánveitingar náðu hámarki nokkrum mánuðum fyrir hrun í maí 2008 þegar fjórtán lykilstarfsmenn Glitnis og einn stjórnarmaður fengu samtals 8,3 milljarða króna lánaða til hlutabréfakaupa í gegnum eignarhaldsfélög. Þrettán af eignarhaldsfélögunum voru stofnuð sama daginn, 17. maí 2008 af endurskoðunarfyrirtækinu KPMG. Slitastjórn Glitnis hefur haft til skoðunar hvernig eigi að endurheimta lánin. Það getur verið hægara sagt en gert fyrir slitastjórn Glitnis að höfða mál á hendur þessum starfsmönnum persónulega, því ólíkt því sem gilti t.d um suma starfsmenn Kaupþings banka sem færðu lán sín í einkahlutafélög eftir á, þá voru þessir starfsmenn Glitnis allir með einkahlutafélög sem voru stofnuð áður en lánin voru veitt. Auk þess voru þessi einkahlutafélög í flestum tilvikum án persónulegra ábyrgða starfsmannanna. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, sagði í samtali við fréttastofu að mál þessara einkahlutafélaga hefðu verið í rækilegri skoðun hjá slitastjórninni. Hún sagði að búast mætti við málshöfðunum í kjölfarið. Steinunn sagði erfitt að endurheimta peningana þar sem ekki væri persónulegri ábyrgð til að dreifa. Hún sagði að í einhverjum tilvikum væri eina leiðin til að ná til eigenda félaganna að setja þau í þrot og láta síðan á það reyna hvort hægt væri að krefja eigendur þeirra um fjárhæðirnar.
Mest lesið Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf Mark Zuckerberg kaupir lóðir fyrir yfir 30 milljónir dollara Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent