Fegursta brú Noregs tengir Íslendinga við fornsögurnar KMU skrifar 20. nóvember 2011 20:00 Hálogalandsbrúin
Hún hefur verið kjörin fegursta brú Noregs og er eitt helsta stolt Norðmanna. Þetta er Hálogalandsbrúin, og svo skemmtilega vill til að hún tengir Íslendinga nútímans við fornsögurnar. Brúin er yfir Leirfjörð á Hálogalandi í Norður-Noregi og var tekin í notkun fyrir tuttugu árum. Hún er rúmlega einn kílómetri á lengd og brúarstöplarnir eru tvöfalt hærri en Hallgrímskirkja eða nærri 140 metra háir. Brúargólfið er í 45 metra hæð yfir firðinum enda þurfa stór skip að geta siglt undir brúna á leið til bæjarins Mosjöen innst í firðinum. Í kosningu í fyrra sem helsta tækniblað Noregs efndi til um hver væri fegursta brú landsins varð þessi í efsta sæti. Hérna er eitt af sögusviðum Egilssögu Skallagrímssonar og segja má að Hálogalandsbrúin tengi Íslendinga nútímans við fornsögurnar. Við annan brúarsporðinn hefur á síðustu árum myndast lítil Íslendinganýlenda, í sveitarfélaginu Leirfjord, en við hinn brúarsporðinn, á eynni Álöst, eða Alster, var höfðingjasetrið Sandnes. Þar bjó Þórólfur Kveldúlfsson, bróðir Skallagríms, og þar var Þórólfur drepinn af sjálfum Haraldi hárfagra Noregskonungi. Rétt eins og í Hvalfjarðargöngum var samið um tímabundið veggjald til að greiða fyrir mannvirkið. Það tók 14 ár og lauk tollheimtunni árið 2005. Síðan hefur verið ókeypis að aka yfir Hálogalandsbrúna.
Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Sjá meira