Fjölnota toghlerar seljast grimmt hjá Polar Fishing Gear 7. febrúar 2011 09:26 Unnið við Hercules um borð í togaranum Vestmannaey. Myndin er á heimasíðu Polar Fishing Gear.
Íslenska fyrirtækið Polar Fishing Gear selur nú grimmt af nýjustu vöru sinni, fjölnota toghleranum „Hercules". Toghlerinn er kominn í skip hér heima, á Bretlandseyjum, í Frakklandi, Suður Afríku og Suður Ameríku. Fjallað er um málið á vefsíðu World Fishing. Þar kemur fram að Herkules byggir á eldri hönnun vinsæls toghlera fyrir botnvörpur frá Polar Fishing Gear sem kallast Mercury. Hlerinn er þannig hannaður að hann er fyrir ofan vörpuna þegar togað er og dregst því ekki eftir botninum. Atli Már Jósafatsson. framkvæmdastjóri Polar segir að þetta sé þeirra framlag til vistvænna veiða. Það sem gerir Hercules vinsælann er að hægt er að nota hann á troll sem liggja ofar í sjó en botnvarpa allt upp að flottrollum. Í umfjöllun World Fishing er haft eftir Atla Má að þau skip sem notað hafa Hercules hafi bætt rekstur sinn og að endurpantanir séu að streyma inn. Greint er frá því að Polar Fishing Gear muni taka þátt í Fishing 2011 Expo sýningunni í Glasgow sem haldin verður seinnihlutann í næsta mánuði. David Moir framkvæmdastjóri Expo segir að þeir séu himinlifandi yfir því að jafn virðingarvert fyrirtæki og Polar Fishing Gear skuli taka þátt í sýningunni. Atli Már segir að þetta sé í fjórða sinn sem þeir kynna vöru sína á Expo í Glasgow.
Mest lesið Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira