Sjælsö reiknar með að reksturinn verði á sléttu í ár 7. febrúar 2011 15:13
Sjælsö Gruppen reiknar með því að rekstur félagsins verði á sléttu í ár, það er að hagnaður ársins verði 0 kr. fyrir skatta og hugsanlegar afskriftir. Skattar og afskriftir nemi hinsvegar um 240 milljónum danskra kr. fyrir árið í fyrra. Í frétt um málið í Jyllands Posten kemur fram að Sjælsö reiknar ekki með að gjaldþrot Amagerbanken hafi umtalsverð áhrif á reksturinn. Á síðasta ári tókst Sjælsö að afla sér 1,3 milljarða danskra kr. eða yfir 26 milljarða kr. með sölu á nýjum verkefnum. Í tilkynningu til kauphallarinnar í Kaupmannahöfn kemur fram að markaðaðstæður hafi þróast í jákvæða átt fyrir Sjælsö. Sjælsö Gruppen er stærsta fasteignafélag Danmerkur. Stærsti hluthafinn í Sjælsö er SG Nord Holding með 25% hlut. SG Nord Holding er svo aftur að hluta til, eða 30%, í eigu Cube Properties sem er skráð til heimilis á Kýpur. Cube Properties hét áður Novator Properties og var að 69% í eigu þeirra feðga Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thor Björgólfssonar gegnum félagið Samson Holding. Þrotabú Samson Holding á nú um 60% af hlutunum í Cube Properties. Kröfuhafar Samson eru svo aftur íslenskir og þýskir bankar ásamt lífeyrisjóðum.
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira