Fyrrum stjórnendur VBS grunaðir um umboðssvik 21. júlí 2011 12:00 Jón Þórisson, fyrrverandi forstjóri VBS.
Fyrrum stjórnendur VBS fjárfestingarbanka eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara vegna gruns um umboðssvik en málið snýst um færslu á láni VBS yfir í ógjaldfært félag í eigu stærstu eigenda bankans. Fyrrverandi forstjóri segir engan hafa rætt við sig um málið. Hann vísar lögbrotum á bug segist hafa tekið allar ákvarðanir með hagsmuni bankans í huga. Nokkrum vikum eftir bankahrunið haustið 2008 voru nokkrar fasteignar færðar úr fasteignafélaginu Ice Properties sem var í eigu Sunds (nú Ice Capital) yfir í félagið Fasteignafélagið Okkar sem er í eigu Páls Magnússonar. Sund var stærsti hluthafinn í VBS og Páll var stjórnarformaður VBS á þessum tíma og auk þess framkvæmdastjóri Sunds og sat því beggja vegna borðsins í þessum gerningi, að því er fram kemur í Viðskiptablaðinu í dag. Ice Properties skuldaði VBS sex til sjö hundruð milljónir króna með veði í eignum félagsins. Í desember 2008 var lán VBS til Ice Properties fært inn í Sund, en Sund tapaði 39,3 milljörðum króna á árunum 2008 og 2009 og var á þessum tíma ógjaldfært félag, að því er fram kemur í Viðskiptablaðinu. Til einföldunar má segja að með þessu hafi fasteignirnar sem tryggja áttu lánin færðar inn í eitt félag meðan skuldirnar voru færðar í annað félag sem gat ekki staðið við skuldbindingar sínar. Slitastjórn VBS hefur þegar tilkynnt að hún hyggist reyna að rifta þessum gerningi, að því er fram kemur í Viðskiptablaðinu. Þessi viðskipti eru nú til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara vegna gruns um umboðssvik og Jón Þórisson, fyrrverandi forstjóri VBS og Páll Magnússon, fyrrum stjórnarformaður bankans, eru grunaðir um að bera á byrgð á hinum meintu brotum. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, staðfesti í samtali við fréttastofu að málið væri til rannsóknar hjá embættinu. Hann sagði rannsóknina skammt á veg komna og gat ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu „Ég hef ekkert heyrt af þessu máli og ef ekki verið boðaður í skýrslutöku. Ég man nú ekki nákvæmlega málavexti, og tel réttast að ræða það við saksóknarann ef hann hefur áhuga á að ræða það við mig," segir Jón Þórisson, fyrrverandi forstjóri VBS. „Ég held að menn hljóti að þurfa að vera með allar staðreyndir á borðinu áður en þeir komast að niðurstöðu. Í grófum dráttum er það þannig, að þarna er slitastjórnin að vinna eftir bestu samvisku og bara eðlilegur hlutur að þeir vísi málinu þangað sem þeir telja að það eigi heima. Ég hef svo sem engar athugasemdir við það, en þarna var ekkert misjafnt á ferðinni. Ef ég man þetta tiltekna atriði rétt þá styrktu þessi viðskipti stöðu bankans mikið. Við vorum í betri stöðu eftir þessi viðskipti en við vorum í áður. Þessar ákvarðanir voru teknar byggðar á gögnum sem lágu fyrir á þeim tíma. Þetta var skynsamleg ráðstöfun fyrir VBS," segir Jón. Hann segir að ef menn hafi verið að rýra hagsmuni bankans hefðu athugasemdir um það komið fram hjá innri endurskoðun bankans. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira