Fjármögnun Búðarhálsvirkjunar ekki í uppnámi Þorbjörn Þórðarson skrifar 11. apríl 2011 18:46
Fjármögnun Búðarhálsvirkjunar er ekki í uppnámi vegna synjunarinnar á Icesave. Hins vegar þarf Landsvirkjun að fjármagna virkjunina á verri kjörum, en það gerist aðeins ef lánshæfi ríkisins lækkar. Landsvirkjun er með fjölda lánasaminga við alþjóðlegar lánastofnanir og margir höfðu haft af því áhyggjur að höfnun Icesave III í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag myndi hafa neikvæði áhrif á fyrirtækið. Fyrst og fremst af þeirri ástæðu að nei á laugardag þýddi lækkun lánshæfiseinkunnar íslenska ríkisins. Tvö matsfyrirtæki meta Landsvirkjun, bandarísku lánshæfisfyrirtækin Moody's og Standard og Poor's. Hvorugt þeirra hefur gert upp hug sinn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna, en fram kom í dag að Moody's hygðist taka sér viku til að gefa út nýja einkunn fyrir íslenska ríkið. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru engin gjaldfellingarákvæði, svokallaði covenantar, (e. covenants) í lánasamningum Landsvirkjunar sem verða virkir ef lánshæfið hjá Moody's og Standard og Poor's fer niður í svokallaðan spákaupsmennskuflokk. Þá munu engir vextir í lánasamningum sem rjúka upp ef lánshæfið verður lækkað. Það sem gerist er að Landsvirkjun mun hugsanlega bjóðast lakari kjör við fjármögnun á skuldabréfamörkuðum erlendis með skammtímafjármögnun. Fjárfestingarbanki Evrópu var búinn að lána Landsvirkjun fyrir Búðarhálsvirkjun en það var skilyrt við að lánshæfið myndi ekki lækka. Ef það fellur er Búðarhálsvirkjun samt á dagskrá, en fjármögnun verkefnisins verður með styttri lánstíma og aðeins verri kjörum . Landsvirkjun setur þó skýran fyrirvara við þetta, enda hafi lánshæfið ekki verið lækkað enn. Laust fé Landsvirkjunar í lok síðasta árs nam 66 milljörðum, en það þarf að fara í afborganir á öðrum lánum, en ekki til að fjármagna nýframkvæmdir.
Mest lesið Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Fleiri fréttir Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Sjá meira