SF II kaupir ríflega helming í Sjóklæðagerðinni 9. júní 2011 08:10
SF II, félag í rekstri Stefnis hf., hefur keypt ríflega helmingshlut í Sjóklæðagerðinni hf. SF II er í eigu SÍA I, Bjarneyjar Harðardóttur og Helga Rúnars Óskarssonar, forstjóra Sjóklæðagerðarinnar. Sigurjón Sighvatsson mun áfram fara fyrir tæpum helmingshlut í félaginu. Fjallað er um málið á vefsíðu Stefnis. Þar segir að Sigurjón fór fyrir kaupum á Sjóklæðagerðinni árið 2004. Frá þeim tíma hefur velta félagsins þrefaldast og útflutningur rúmlega fjórfaldast. Afkoma félagsins hefur batnað í takt við veltu félagsins þrátt fyrir þrengingar í íslensku efnahagslífi. ,,Félagið hefur búið að frábærum hópi starfsfólks sem hefur getað byggt á sterkri arfleifð með höfuðáherslu á hönnun og gæði. Þau gildi verða leiðarljós félagsins áfram, en vegna aukinna umsvifa og anna við aðalstarf mitt við framleiðslu kvikmynda var ljóst að styrkja þurfti bæði hluthafahópinn og yfirstjórn félagsins,“ segir Sigurjón Sighvatsson. Vörur Sjóklæðagerðarinnar eru seldar í meira en 500 verslunum í 15 löndum og starfsmenn félagsins eru um 300. Stærsti eigandi SF II er SÍA I sem er fagfjárfestasjóður í rekstri Stefnis hf. Stefnir er stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins með um 300 milljarða króna í virkri stýringu. Sjóðfélagar SÍA I eru margir af stærstu lífeyrissjóðum landsins auk annarra öflugra fagfjárfesta. Auk fjárfestingarinnar í Sjóklæðagerðinni hefur SÍA I ásamt meðfjárfestum keypt kjölfestuhlut í Högum hf. og kaup á meirihluta í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. eru á lokastigi.
Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira