Viðskipti innlent

Harpa lýst með 5.500 perum

Arnar Þór Hafþórsson sölu – og markaðsstjóri Jóhanns Ólafssonar & Co. og Páll S. Ragnarsson tæknistjóri Ljósabúnaðar í Hörpunni, innsigla samninginn.
Arnar Þór Hafþórsson sölu – og markaðsstjóri Jóhanns Ólafssonar & Co. og Páll S. Ragnarsson tæknistjóri Ljósabúnaðar í Hörpunni, innsigla samninginn.
Nýlega var gengið frá samningi milli Jóhanns Ólafsson & Co. umboðsaðila OSRAM á Íslandi og rekstrarfélags Hörpunnar, um að allar perur sem notaðar séu í Hörpunni verði frá OSRAM.

Um er að ræða allar perur sem notaðar eru til almennrar lýsingar í Hörpunni en þær eru um 5.500 talsins. Sérstök áhersla mun verða lögð á að nota orkusparandi og endingargóðar ljósaperur til að lækka rekstrarkostnað hússins. 

Í tilkynningu segir að samningurinn var gerður í kjölfar útboðs sem efnt var til fyrr í haust en alls bárust þá 6 tilboð frá 6 fyrirtækjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×