Viðskipti innlent

Hátækni bankastarfsemi bjó Icesave vandann til

Ólafur Ragnar Grímsson, sést hér flytja ræðu sína á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Genúa í dag.
Ólafur Ragnar Grímsson, sést hér flytja ræðu sína á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Genúa í dag.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði í setningarræðu sinni á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um skuldavanda þjóða, sem haldin er í Genúa á Ítalíu og sett var í dag, að hátækni bankastarfsemi væri að gera eftirlitsstofnunum erfitt fyrir. Nauðsynlegt væri að gjörbreyta hinu alþjóðlega bankakerfi, sagði Ólafur Ragnar.

Nefndi hann sem dæmi að Ísland, Holland og Bretland hefðu ekki getað náð utan um vandamálið sem skapaðist vegna Icesave-reikningana. Þar hefði hraðinn sem fylgdi nýrri tækni við innlánssöfnun skipt sköpum og gert þjóðunum ómögulegt að grípa til nauðsynlegra aðgerða.

Ræðu Ólafs Ragnars, á ensku, má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×