Framtíðarheimili með 4G í Lágmúla 14. nóvember 2011 17:00 Fyrstu prófanir Nova sýna að með 4G er hægt að ná 70-80 Mb/s nethraða en aðeins þarf að tengja 4G-boxið við rafmagn.
Nova hefur byggt upp 4G kerfi á hluta höfuðborgarsvæðisins samkvæmt tilraunaleyfi Póst- og fjarskiptastofnunar sem Nova fékk úthlutað í sumar. Í tilefni af því hefur Nova innréttað 4G íbúð í verslun sinni í Lágmúla 9 þar sem gestum og gangandi býðst að koma við og upplifa hvernig hin nýja 4G tækni kemur til með að nýtast á heimilum í framtíðinni. 4G er þráðlaus háhraðanettenging sem nær að minnsta kosti þreföldum hraða borið saman við hröðustu ADSL nettengingar. Heimili munu tengjast 4G netþjónustunni með 4G-boxi sem kemur í staðinn fyrir ADSL-box eins og algeng eru í dag. Aðeins þarf að tengja 4G-boxið við rafmagn. 4G er nú þegar komið í notkun t.d. á hinum Norðurlöndunum, í Eystrasaltslöndunum og í Bandaríkjunum auk þess sem uppbygging á sér stað víða um heim. „Talið er að sprenging verði í notkun internetsins í gegnum farsímakerfi á næstu árum. Þess vegna er talið nauðsynlegt að ráðast sem fyrst í uppbyggingu öflugs 4G kerfis til að geta mætt þeirri eftirspurn sem fyrirsjáanlegt er að verði," segir Liv Bergþórsdóttir framkvæmdastjóri Nova. Fyrstu prófanir Nova sýna að með 4G kerfinu er hægt að ná allt að 70-80 Mb/s nethraða við bestu aðstæður. Einnig verður hægt að tengjast 4G þjónustunni með túrbó-pungum fyrir fartölvur og á næsta ári munu einnig koma á markað 4G farsímar og spjaldtölvur. Nova væntir þess að Póst- og fjarskiptatofnun úthluti 4G tíðniheimildum snemma á næsta ári og í framhaldi af því geti uppbygging 4G kerfa hafist fyrir alvöru hér á landi og hægt verði að bjóða 4G tengingar í almennri sölu. Þeir sem vilja fræðast enn frekar um 4G geta kíkt á nova.is/4g. Einnig verða kynningar á 4G í íbúðinni í verslun Nova í Lágmúla alla virka daga klukkan 12 til 13 út þessa viku.
Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Viðskipti erlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Sjá meira