Hagstæðasta tilboði í Sjóvá var tekið 3. ágúst 2011 07:03
Seðlabanki Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að fullyrðingar um að hagstæðasta tilboði hafi ekki verið tekið eru rangar. Þegar kaupsamningur við núverandi kaupendahóp var undirritaður lá ekki fyrir gilt tilboð frá öðrum sem hægt var að taka afstöðu til. Yfirlýsingin hljóðar svo: „Hinn 28. júlí sl. var gengið frá sölu á hlut Eignasafns Seðlabanka Íslands í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. Í framhaldi hefur átt sér stað nokkuð undarleg umræða um söluna þar sem ætla mætti að fram hafi komið nýjar upplýsingar varðandi söluverð og aðra skilmála. Svo er ekki þar sem þær upplýsingar hafa allar legið fyrir síðan í janúar í ár þegar kaupsamningur var undirritaður með fyrirvara um samþykki eftirlitsaðila og önnur atriði. Hið nýja í málinu nú er að þessi skilyrði fyrir frágangi sölunnar hafa verið uppfyllt og afhending hlutarins hefur farið fram. Flest þau atriði sem nú hafa verið nefnd í umræðunni voru nefnd snemma á árinu og voru rækilega útskýrð í fréttatilkynningum og sérstakri yfirlýsingu Seðlabankans. Þrátt fyrir það virðist ekki undan því vikist að endurtaka að einhverju leyti þær yfirlýsingar sem þá voru gefnar. Fyrst er að nefna að fullyrðingar um að hagstæðasta tilboði hafi ekki verið tekið eru rangar. Þegar kaupsamningur við núverandi kaupendahóp var undirritaður lá ekki fyrir gilt tilboð frá öðrum sem hægt var að taka afstöðu til. Eins og kemur fram í yfirlýsingu Seðlabankans frá 4. febrúar síðastliðnum var það tilboð dregið til baka sem sett var fram sl. haust. Eins og einnig kemur fram í fyrrnefndri yfirlýsingu kom upp atvik sem varð að fá niðurstöðu í áður en hægt væri að ganga til samninga við umræddan hóp. Seðlabankinn var fyrir sitt leyti tilbúinn að bíða eftir því og loka ekki á samninga við hópinn. Tilboðsgjafar ákváðu hins vegar sjálfir að draga tilboð sitt til baka. Það hefur því lítið upp á sig að láta eins og það hafi verið í boði í janúar sl. Í þessu samhengi er jafnframt rétt að greina frá því að Fjármálaeftirlitið hafði ekki lokið mati sínu á því hvort umræddur fjárfestahópur væri hæfur til að fara með virkan eignarhlut í vátryggingarfélaginu. Fjárfestirinn SF1 sem nú hefur keypt hlutinn gerði tvö tilboð og var annað þeirra algjörlega hliðstætt upprunalegu tilboði þess hóps sem sagði sig frá sölunni, en þess má geta að SF1 var stærsti aðilinn í þeim hópi. Það var hins vegar mat sérfræðinga á vegum ESÍ að hagstæðara væri að taka hinu tilboðinu, eins og ítarlega er rökstutt í yfirlýsingunni frá 4. febrúar sl. Stjórn ESÍ var sammála þessu mati og var því gengið til samninga við SF1 á þeim grundvelli. Þar skipti miklu að gert var ráð fyrir sölu á mun stærri hluta strax, þ.e. meirihluta í Sjóvá-Almennum tryggingum, sem losaði Seðlabankann úr þeirri stöðu að vera kjölfestueigandi í félaginu. Vert er að benda á að þessi fjárfestir hafði verið metinn hæfur af umsjónaraðila söluferlisins í upphafi þess, m.a. út frá fjárhagslegum styrk, en á síðari stigum ferlisins varð hann hluti þess hóps sem lagði fram tilboðið síðasta haust. Það var því ekki neinn munur á honum og þeim hópi sem sagði sig frá ferlinu hvað þetta varðar.“
Mest lesið Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira