Kaupin á Sjóvá samþykkt 1. júlí 2011 16:44
Kaup SF1 á meirihluta í Sjóvá (Sjóvá-Almennum tryggingum hf) hafa hlotið samþykki Fjármálaeftirlits, Samkeppniseftirlits og stjórnar ESÍ (Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf). Í tilkynningu frá félaginu segir að þar með séu kaupin lögformlega frágengin og ný stjórn verður formlega skipuð á næsta hluthafafundi félagsins. Fulltrúar SF1 í stjórn Sjóvá verða Ingi Jóhann Guðmundsson, Tómas Kristjánsson og Erna Gísladóttir, sem mun verða formaður nýrrar stjórnar. Erna segir ánægjulegt að kaupin hafi verið staðfest „enda teljum við að Sjóvá sé mjög áhugavert félag með mikilvægt hlutverk í samfélaginu. Við munum vinna rösklega að því að móta fyrirtækinu nýja stefnu til að búa það sem best undir tækifæri og kröfur framtíðarinnar. Jafnframt verður lögð áhersla á Sjóvá haldi áfram að bjóða viðskiptavinum sínum trausta og góða þjónustu." „Í mars sl. lá fyrir að SF1, félag í rekstri Stefnis hf, hafði tryggt fjármögnun á kaupum á ríflega helmingi hlutafjár Sjóvár en kaupsamningurinn var háður skilyrðum um tiltekin atriði, þ.á m. samþykki framagreindra aðila, sem nú hafa veitt samþykki sitt. Stærstu eigendur SF1 eru Gildi lífeyrissjóður, SVN eignafélag ehf. (félag í eigu Síldarvinnslunnar hf.), SÍA I (fagfjárfestasjóður undir stjórn rekstrarfélagsins Stefnis, en eigendur SÍA I eru meðal annars stærstu lífeyrissjóðir landsins), Frjálsi Lífeyrissjóðurinn, Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 (LSR), Stapi Lífeyrissjóður og fagfjárfestasjóðurinn Stefnir ÍS-5. Aðrir eigendur SF1 eru Festa lífeyrissjóður, EGG ehf, (í eigu Ernu Gísladóttur), Arkur ehf. (í eigu Steinunnar Jónsdóttur), Lífeyrissjóður bænda, Sigla ehf. (í eigu Tómasar Kristjánssonar og Finns Reyrs Stefánssonar) og Draupnir fjárfestingafélag ( í eigu Jóns Diðriks Jónssonar). Kaupin eru að fullu fjármögnuð með eiginfjárframlögum og fer enginn hluthafa með stærri hlut en sem svarar til 10% hlutdeildar í Sjóvá,“ segir ennfremur í tilkynningunni frá SF1.
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira