Horft um öxl: Saga Stígamóta 7. september 2011 12:00 Mig langar í þessari stuttu samantekt um sögu og tilurð Stígamóta að byrja á því að setja hana í alþjóðlegt samhengi og færa hana síðan á heimavöll. Kvenfrelsishreyfingar hafa frá fyrstu tíð látið sig varða ofbeldi karla gegn konum og börnum. Í Bandaríkjunum og Vestur-Evrópu spratt t.d. upp á síðari hluta 19. aldar sterk hreyfing kvenna, í tengslum við kvennabaráttu þeirra ára, sem beitti sér fyrir því að stofnuð voru félög og hafin félagsleg þjónusta fyrir konur og börn sem sættu ofbeldi í fjölskyldum sínum. Rannsóknir bandarískrar konu, Lindu Gordon, á skrám og skýrslum hjálpar- og félagsmálastofnana í Boston á árunum 1880 til 1960 sem hún birti 1989 sýna ljóslega þessi tengsl. Hún sýnir jafnframt hvernig áherslur, skilningur og skilgreiningar á eðli þessa ofbeldis breyttust, þegar áhrif kvenfrelsiskvenna á félagsmálastarfsemi dvínuðu í lok fyrsta áratugar 20. aldar samhliða hnignandi kvenréttindabaráttu. Í hendur nýrra fagstéttaFélagsmálaþjónustan færðist þá úr höndum kvenréttindakvenna í hendur nýrra fagstétta. Kvenréttindakonurnar höfðu skilgreint ofbeldið á konum og börnum sem afleiðingu ofurvalds feðra og eiginmanna yfir konum og börnum í gömlu feðraveldisfjölskyldunni. Faghóparnir nýju byggðu skilning sinn á ofbeldinu á „vísindalegum“ kenningum, þar sem grundvallar afstaðan var að slíkt ofbeldi væri afar sjaldgæft og þegar það ætti sér stað væri skýringanna að leita hjá fórnarlambi þess. Fagstéttirnar nýju afskrifuðu því starf kvenréttindakvenna sem óvísindalega forræðishyggju. Nauðganir, sifjaspell og barsmíðar á eiginkonum urðu þar með ósýnileg í skýrslum félagsmálastofnana þeirra tíma. Það var síðan ekki fyrr en á 8. og 9. áratug síðustu aldar að konur í kvennahreyfingu þess tíma rufu þögnina um barsmíðar á konum, nauðganir og sifjaspell, og kröfðust umræðu, úrbóta og viðurkenningar á slíku ofbeldi sem samfélagslegu vandamáli. Þetta stutta sögulega ágrip sýnir að sterk samfélagsleg öfl hafa jafnan lagst á eitt við að þagga niður og gera kynferðisofbeldi ósýnilegt á þeim tímabilum sem kvennabarátta hefur verið í lágmarki. Áður en lengra er haldið vil ég gera stuttlega grein fyrir hvað felst í hugtakinu kynferðisofbeldi. Kynferðisofbeldi er samheiti yfir margskonar atferli, sem á það sameiginlegt að þolendur þess eru beittir ofbeldi, sem ofbeldismaðurinn færir í kynferðislegan farveg. Kynferðisofbeldi miðar að því að lítillækka, auðmýkja, ráða yfir og skeyta ekki um vilja eða líðan þess sem fyrir því verður. Fólk á öllum aldri og af báðum kynjum er beitt kynferðisofbeldi. Þetta ofbeldi er jafnframt kynbundið. þ.e. karlar fremja það í yfirgnæfandi meirihluta tilvika og það beinist fyrst og fremst að konum og börnum. Kynferðisofbeldi birtist í mismunandi formi. Það getur t.d. verið sifjaspell, kynferðisofbeldi ókunnugra gagnvart börnum, nauðganir, vændi, mansal til kynlífsþrælkunar, klám og kynferðisáreitni. Þögnin rofinEn víkjum nú að Stígamótum. Saga þeirra endurspeglar samskonar þróun og rakin var hér að ofan. Tilurð Stígamóta er nátengd kvenfrelsisbaráttu íslenskra kvenna á síðari hluta síðustu aldar. Þær rufu þögnina um andlegt og líkamlegt ofbeldi sem konur sættu á heimilum sínum og stofnuðu Kvennaathvarfið 1982. Í kjölfarið spruttu upp hópar kvenna sem stóðu að stofnun Kvennaráðgjafar og Ráðgjafarhóps um nauðgunarmál. Starf Kvennaathvarfsins og þessara hópa leiddi í ljós að kynferðislegt ofbeldi af ýmsu tagi var tiltölulega algengt hér á landi eins og annarsstaðar í hinum vestræna heimi. Árið 1986 tók hópur kvenna sig saman og stofnaði enn einn kvennahópinn, Vinnuhóp gegn sifjaspellum. Starf þessa hóps beindist að því að koma á fót fyrsta vísinum að ráðgjafar- og hópstarfi kvenna, sem sættu sifjaspellum í bernsku. Starf þessara hópa og sú innsýn og þekking sem þeir bjuggu yfir eftir áralangt sjálfboðaliðastarf með þolendum kynbundins ofbeldis voru ásamt mórölskum stuðningi félaga kvenna innan launþegahreyfinganna forsenda þess að við gátum loks stofnað Stígamót, ráðgjafar- og fræðslumiðstöð fyrir konur og börn sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi. Og að sjálfsögðu völdum við stofndaginn á alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars 1990. Mikilsverður áfangiÞar með náðist mikilsverður áfangi og fótfesta í baráttunni gegn kynferðisofbeldi á Íslandi. Þögnin var rofin og konur fengu sameiginlegan baráttuvettvang. Stígamót hafa í gegnum árin styrkst við hverja raun og fyrir löngu sannað tilverurétt sinn, því miður verð ég að segja, því allt bendir til að hverskyns kynferðisofbeldi fari frekar vaxandi en hitt. Því er nauðsyn sem aldrei fyrr að halda vöku sinni og efla og styrkja baráttuna gegn kynferðisofbeldi. Ég vil að lokum nota þetta tækifæri til að árna Stígamótakonum allra heilla í mikilsverðu og ómetanlegu starfi sínu. Við hin getum tryggt fjárhagslegan grundvöll Stígamóta og lagt baráttunni gegn kynferðisofbeldi lið með því að gerast stuðningsfólk Stígamóta með mánaðarlegu framlagi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Tiltekt í Reykjavík Aðalsteinn Leifsson Skoðun Á bak við tært vatn sundlauganna, ósýnilegt hlutverk heilbrigðiseftirlits Kolbrún Georgsdóttir Skoðun Nýtum kennsluaðferðir sem skila betri árangri Skúli Helgason Skoðun 900 metrar sem geta breytt Grafarvogi Friðjón Friðjónsson Skoðun Hvers vegna læra börnin þín ekki neitt? Svarið gæti verið í speglinum Jónas Sen Skoðun Ég reyndi að byggja ódýrar íbúðir í Reykjavík Pétur Marteinsson Skoðun Þegar fátt virðist gerast: Hvað er í raun að gerast þegar börn leika sér í leikskóla? Margrét Gígja Þórðardóttir,Ingibjörg Vilbergsdóttir Skoðun Menntastefna á finnskum krossgötum Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Kynhlutlaust klerkaveldi Haukur Þorgeirsson Skoðun Tímabært að koma böndum á gjaldskyldufrumskóginn Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Skoðun Skoðun Tökum skrefið lengra í stuðningi við börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu og skimum fyrir vellíðan Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Getur Samfylkingin leitt breytingar í Reykjavík? Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Á bak við tært vatn sundlauganna, ósýnilegt hlutverk heilbrigðiseftirlits Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Nýtum kennsluaðferðir sem skila betri árangri Skúli Helgason skrifar Skoðun Tiltekt í Reykjavík Aðalsteinn Leifsson skrifar Skoðun Hvers vegna læra börnin þín ekki neitt? Svarið gæti verið í speglinum Jónas Sen skrifar Skoðun Ég reyndi að byggja ódýrar íbúðir í Reykjavík Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Aðför að heildrænni endurhæfingu: Skammsýni á Reykjalundi Þórunn Hanna Halldórsdóttir,Elísabet Arnardóttir,Sigríður Magnúsdóttir,Þóra Másdóttir skrifar Skoðun Framhaldsskólinn: horfum til framtíðar og finnum lausnir Simon Cramer Larsen skrifar Skoðun Um taugafjölbreytileika Svava Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ódýrt á pappír, dýrt í raun – og þjóðin blæðir Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Samvinna, en ekki einangrun María Malmquist skrifar Skoðun 900 metrar sem geta breytt Grafarvogi Friðjón Friðjónsson skrifar Skoðun Kerfi sem kosta skattgreiðendur Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Ákall til önugra femínista – Steinunni í borgarstjórn! Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Er skóli án aðgreiningar barn síns tíma? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Alvöru aðför að einkabílnum Búi Bjarmar Aðalsteinsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Evrópu halda áfram – þegar viðvaranir fá engin svör Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Setjum endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna í forgang Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Um siðfræðingsvandamálið Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þegar fátt virðist gerast: Hvað er í raun að gerast þegar börn leika sér í leikskóla? Margrét Gígja Þórðardóttir,Ingibjörg Vilbergsdóttir skrifar Skoðun Kynhlutlaust klerkaveldi Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um hitaveitu Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Þéttingarstefna eða skynsemi? Ögmundur Ísak Ögmundsson skrifar Skoðun Hvers virði er starfsumhverfi myndlistarmanna? Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ekki gera ekki neitt Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Mönnun íslensks heilbrigðiskerfis til framtíðar í uppnámi Unnur Anna Valdimarsdóttir,Arna Hauksdóttir,Berglind Eva Benediktsdóttir,Bjarni Elvar Pétursson,Heiða María Sigurðardóttir,Helga Bragadóttir,Ólafur Ögmundarson,Sólveg Ása Árnadóttir,Sædís Sævarsdóttir skrifar Skoðun Mjódd framtíðar - hjarta Breiðholts Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til frambjóðenda í Reykjavík: Hættum frösunum – leysum leikskólavandann með raunverulegum aðgerðum Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Það þarf ekki fullkomið fólk til að móta gott samfélag. Það þarf fólk sem er tilbúið að vera til staðar Liv Åse Skarstad skrifar Sjá meira
Á bak við tært vatn sundlauganna, ósýnilegt hlutverk heilbrigðiseftirlits Kolbrún Georgsdóttir Skoðun
Þegar fátt virðist gerast: Hvað er í raun að gerast þegar börn leika sér í leikskóla? Margrét Gígja Þórðardóttir,Ingibjörg Vilbergsdóttir Skoðun
Skoðun Tökum skrefið lengra í stuðningi við börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu og skimum fyrir vellíðan Magnea Marinósdóttir skrifar
Skoðun Á bak við tært vatn sundlauganna, ósýnilegt hlutverk heilbrigðiseftirlits Kolbrún Georgsdóttir skrifar
Skoðun Aðför að heildrænni endurhæfingu: Skammsýni á Reykjalundi Þórunn Hanna Halldórsdóttir,Elísabet Arnardóttir,Sigríður Magnúsdóttir,Þóra Másdóttir skrifar
Skoðun Ákall til önugra femínista – Steinunni í borgarstjórn! Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Mótmæli bænda í Evrópu halda áfram – þegar viðvaranir fá engin svör Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Setjum endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna í forgang Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Kolbrún Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Þegar fátt virðist gerast: Hvað er í raun að gerast þegar börn leika sér í leikskóla? Margrét Gígja Þórðardóttir,Ingibjörg Vilbergsdóttir skrifar
Skoðun Mönnun íslensks heilbrigðiskerfis til framtíðar í uppnámi Unnur Anna Valdimarsdóttir,Arna Hauksdóttir,Berglind Eva Benediktsdóttir,Bjarni Elvar Pétursson,Heiða María Sigurðardóttir,Helga Bragadóttir,Ólafur Ögmundarson,Sólveg Ása Árnadóttir,Sædís Sævarsdóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til frambjóðenda í Reykjavík: Hættum frösunum – leysum leikskólavandann með raunverulegum aðgerðum Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Það þarf ekki fullkomið fólk til að móta gott samfélag. Það þarf fólk sem er tilbúið að vera til staðar Liv Åse Skarstad skrifar
Á bak við tært vatn sundlauganna, ósýnilegt hlutverk heilbrigðiseftirlits Kolbrún Georgsdóttir Skoðun
Þegar fátt virðist gerast: Hvað er í raun að gerast þegar börn leika sér í leikskóla? Margrét Gígja Þórðardóttir,Ingibjörg Vilbergsdóttir Skoðun