Vörður tryggingar skilaði ágætum hagnaði á síðasta ári 13. apríl 2011 07:59
Rekstur Varðar trygginga skilaði 223 milljóna hagnaði árið 2010. Þetta er nokkur aukning frá árinu 2009, þegar hagnaður af rekstrinum var 181 milljón króna. Í tilkynningu segir að heildartekjur Varðar jukust jafnframt milli ára, voru 4,1 milljarður króna í fyrra, en um 3,7 milljarðar króna árið áður. Heildargjöld jukust úr 3,6 milljörðum árið 2009 í 3,9 milljarða á síðasta ári. Allar helstu tölur úr rekstri sýna hvernig afkoma félagsins styrktist á síðasta ári. Eigin iðgjöld jukust um 8% og voru 3.470 milljónir í fyrra samanborið við 3.225 milljónir króna árið 2009. Fjárfestingatekjur Varðar jukust um 27% milli ára og voru 615 milljónir króna árið 2010. Eiginfjárhlutfall Varðar var 22,6% á síðasta ári og arðsemi eiginfjár 15,8%. Gjaldþol Varðar var 1,94 á síðasta ári en var 1,72 í árslok 2009. „Síðasta rekstrarár sýnir að Vörður tryggingar er að vaxa og eflast á íslenska tryggingamarkaðnum. Þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður í efnahagslífinu hefur félagið skilað hagnaði síðustu tvö ár og fest sig í sessi sem góður valkostur fyrir bæði einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Félagið eflist og eykur hlutdeild sína ár frá ári og við merkjum að það er greinileg eftirspurn eftir fleiri valkostum á íslenska tryggingamarkaðnum. Vöxturinn í starfseminni er vissulega gleðiefni en það gleður okkur ekki síður að viðskiptavinir Varðar eru ánægðir með þjónustu félagsins,“ segir Guðmundur J. Jónsson, forstjóri Varðar trygginga. „Við trúðum því þegar við komum inn í rekstur Varðar trygginga árið 2009 að það væru góð sóknarfæri fyrir félagið á íslenska tryggingamarkaðnum. Afkoma félagsins síðustu misseri hefur sýnt að það var rétt mat því Vörður hefur skilað góðri afkomu og eflt stöðu sína. Sóknarfærin eru enn til staðar, íslenskir neytendur og fyrirtæki vilja góða þjónustu og Vörður mun áfram leggja sig fram um að veita hana,“ segir Janus Petersen, forstjóri BankNordik og stjórnarformaður Varðar trygginga.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira