Viðskipti með hluti í írskum bönkum stöðvuð 31. mars 2011 08:39
Búið er að taka ákvörðun um að stöðva viðskipti með hluti í bönkunum Bank of Ireland og Allied Irsh Bank á markaðinum í Dublin í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá seðlabanka landsins. Eftir lokun markaðarins í dag verða birtar niðurstöður álagsprófa á írsku bankana. Í tilkynningunni segir að ákvörðunin sé tekin til þess að koma í veg fyrir ónauðsynlegar markaðssveiflur sem myndu orsakast um orðrómi um niðurstöður álagsprófanna. Áður hefur komið fram að írsk stjórnvöld gætu neyðst til þess að taka yfir ráðandi hlut í Bank of Ireland og Irsh Life & Permanent í kjölfar birtingar á álagsprófunum. Þar með væru írsk stjórnvöld komin með ráðandi hlut í öllum innlendum bönkum Írlands. Fjallað er um málið á Bloomberg fréttaveitunni. Þar segir að álagsprófið muni skera úr um hvort fyrrgreindir tveir bankar lendi í sömu örlögum og fjórir aðrir af stærstu bönkum landsins. Samkvæmt áliti tíu greinenda sem Bloomberg leitaði til eru allar líkur á að írsk stjórnvöld muni krefjast þess að bankar landsins útvegi sér 27,5 milljarða evra, eða tæplega 4,500 milljarða kr., í auknu eiginfé. Stjórnvöld hafa lofað bönkunum að leggja þeim til eiginfé ef þeir geta ekki aflað þess sjálfir.
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira