Jóni Ásgeiri og félögum stefnt fljótlega Jón Hákon Halldórsson skrifar 31. mars 2011 09:50 Steinunn H. Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson í slitastjórn Glitnis. Mynd/ Pjetur.
Allar líkur eru á því að mál Glitnis gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og sex viðskiptafélögum hans verði höfðað á Íslandi. Málið sem var upphaflega höfðað í New York en vísað frá dómi þar verði brotið niður í fleiri smærri mál. „Það eru allar líkur á að þetta verði gert á Íslandi og að þetta verði fleiri en eitt mál," segir Steinunn H. Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, í samtali við Vísi. Viðskiptablaðið hefur eftir heimildarmönnum sínum í dag að fleiri einstaklingum verði stefnt hér heima en voru á meðal þeirra stefndu í New York. Því muni einhverjir nýir bætast í þann hóp. „Það er alls ekki víst að sömu aðilum verði stefnt. Það getur vel verið að það verði færri aðilum stefnt en það getur líka verið að það verði fleiri aðilum stefnt," segir Steinunn. Steinunn segir skammt í að stefna verði birt að nýju. Viðskiptablaðið segir að slitastjórnin unnið að undirbúningi málshöfðanna á Íslandi samhliða því að mál hennar gegn sjö einstaklingum og PwC var rekið fyrir dómstólum í New York. Það hafi verið gert til að geta brugðist við því ef málið yrði ekki tekið til efnislegrar meðferðar þar. Málið í New York snerist um að krefja Jón Ásgeir Jóhannesson og viðskiptafélaga hans um 230 milljarða íslenskra króna fyrir að hafa rænt Glitni innanfrá. Auk Jóns Ásgeirs var þeim Ingibjörgu Pálmadóttur, Lárusi Welding, Pálma Haraldssyni, Hannesi Smárasyni, Þorsteini M. Jónssyni og PwC stefnt fyrir aðild að málinu.
Mest lesið Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Blöskraði dekkjaverð á Íslandi og sparaði sér á þriðja hundrað þúsund Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Sjá meira