Hagvöxtur eykst sem og fjárfestingar 12. desember 2011 03:00 Forsætisráðherra segir nýjar hagvaxtatölur mjög ánægjulegar. Fréttablaðið/anton
Hagvöxtur var 3,7 prósent á fyrstu níu mánuðum ársins. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir þetta mjög ánægjulegar tölur sem sýni að hagvöxtur fárra þjóða aukist jafn hratt og Íslendinga. Hún segir auknar útflutningstekjur og í atvinnuvegafjárfestingu þýða meiri atvinnu og þá hafi ferðaþjónustan komið sérstaklega vel út. Einkaneysla sé einnig að aukast. „Þetta er í raun eins og við bjuggumst við og í samræmi við okkar spár. Þetta er þvert á bölmóð stjórnarandstöðunnar og sýnir að efnahagsstjórnin hefur heppnast vel,“ segir Jóhanna. Hún segir bætt ástand endurspeglast í hærri launum og lífeyri og hærri atvinnuleysisbótum. Þá hafi kaupmáttur vaxið um 3,5 prósent frá desember 2010 til október 2011. Árangur sem ríkisstjórnin hafi stefnt að sé að skila sér. „Við þurfum bara að halda áfram og skila enn meiri hagvexti. Það er útlit fyrir að spár okkar varðandi kjarasamningana muni ganga fram og við vonumst eftir enn meiri hagvaxtaraukningu, minna atvinnuleysi og meiri atvinnuvegafjárfestingu. Það hafa allir lagt sig fram um að ná árangri í efnahagsstjórninni og góður árangur hefur náðst í ríkisfjármálum.“ Forsætisráðherra segir mælikvarða sem settir voru við fjárlagagerð munu nást. Ríkissjóður sé rekinn með 1,2 prósenta halla en frumjöfnuður sé jákvæður um 2 prósent. Það þýði 35 milljarða,sem sé ótrúlega góður árangur. „Þetta endurspeglast í hærra lánshæfismati og er mjög jákvætt fyrir Ísland.“- kóp
Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Viðskipti Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Sjá meira