Íslenskur hugbúnaður hugsanlega tekinn í þjónustu San Francisco 24. mars 2011 13:50 Golden Gate brúin í San Francisco.
Íslenskur hugbúnaður, MainManager frá ICEconsult, hefur verið valinn í hóp fimm bestu lausna í alþjóðlegri samkeppni á vegum Living Labs Global sem hefur það að markmiði að kynna nýjungar á sviði þjónustu í borgum. MainManager kemur til greina í flokknum „Creating the Next Generation of Government“, sem unnið er í samstarfi við San Francisco borg og verður lausn sigurvegarans tekin í notkun í borginni til að sanna notagildi sitt. Markmið San Francisco er að finna lausn sem bætir opinbera þjónustu, þrátt fyrir að fjárveitingar séu að lækka. Kerfið á að nýta þau gögn og þá innviði sem þegar eru til staðar í borginni með hagkvæmum hætti ásamt því að auka gegnsæi og aðkomu íbúa að ákvarðanatöku. Alls voru skráð til leiks 245 verkefni frá 127 borgum og 30 löndum úr 6 heimsálfum. MainManager er eina lausnin í lokahópnum fyrir San Francisco verkefnið sem kemur utan Bandaríkjanna. MainManager, sem hefur verið þróað alfarið hjá ICEconsult, þykir vera framúrstefnulegt og bjóða margar nýjungar sem ekki hafa sést áður í hugbúnaðarlausnum sem þessum. Meðal þess er áætlanagerð og verkefnaumsýsla fyrir sveitarfélög sem opnar möguleika fyrir aðkomu íbúanna að ákvarðanatöku með beinum hætti. Nýstárleg útfærsla með tengingum við önnur kerfi eins og t.d. landupplýsingakerfi (e. GIS) er meðal þeirra kosta sem skila kerfinu þessum árangri. Sigurvegarinn verður krýndur á glæsilegri verðlaunahátíð Living Labs Global (e. Living Labs Global Award 2011 ceremony) í Stokkhólmi þann 12. maí næst komandi.
Mest lesið Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Blöskraði dekkjaverð á Íslandi og sparaði sér á þriðja hundrað þúsund Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Sjá meira