Fagna áliti um vafa á afturvirkum vöxtum 7. mars 2011 09:52
Samtök lánþega fagna áliti embættis Talsmanns neytenda hvar settur er fram rökstuddur vafi umheimild fjármálafyrirtækja til að krefja lánþega um afturvirka vexti. Í tilkynningu frá Samtökum lánþega segir að Talsmaðurinn taki þar undir sjónarmið Samtaka lánþega sem sett voru fram strax í kjölfar úrskurða Hæstaréttar frá 14. febrúar síðast liðnum. Í leiðbeinandi áliti Talsmanns er settur fram greinargóður rökstuðningur með vísan til meginreglna laga, laganna sjálfra, skýrra dómafordæma sem og Evrópureglna um neytendavernd. Segir meðal annars: “Hitt kemur ekki fram í lögum að fjármálafyrirtæki geti eftir endurútreikning krafið neytendur um hækkun á eftirstöðvum höfuðstóls og eftir atvikum gert neytendum að greiða bakreikning - svo sem vegna skuldbindingar sem þegar hefur verið efnd. Slíkar kröfur vegna „vangreiðslu“ vaxta í fortíðinni telur talsmaður neytenda ekki standast - m.a. með vísan til gagnályktunar frá lögunum. Ekki liggur heldur fyrir dómur um hvort unnt sé að gera kröfur um vexti aftur í tímann miðað við vexti Seðlabanka Íslands þegar samningar hafa verið gerðir upp samkvæmt greiðsluseðlum á hverjum tíma.” Samkvæmt þessu er ljóst, svo sem samtökin hafa lagt áherslu á, að engin heimild er til staðar í lögum til að innheimta ólögmæt lán með þeim hætti sem fjármálafyrirtækin gera. Þvert á móti má gera ráð fyrir að endurútreikningur eigi að byggja á eftirfarandi aðferðafræði: Lán skal fært til upphaflegs höfuðstóls og frá þeirri fjárhæð dregin sú fjárhæð sem samkvæmt greiðsluseðlum hefur verið greidd inn á höfuðstól. Líta ber á greiddar vaxtagreiðslur samkvæmt greiðsluseðlum sem fullnaðaruppgjör vaxta, enda enginn fyrirvari gerður af hálfu fjármalafyrirtækjanna um annað. Frá og með síðasta greidda gjalddaga skuldbindingar skal fjármálastofnun reikna lægstu óverðtryggðu vexti eins og þeir eru gefnir út af Seðlabanka Íslands, á þann höfuðstól sem eftir stendur af láni skv. lið 1. Allar tilraunir fjármálafyrirtækja til að reikna gengistryggðar skuldbindingar með öðrum hætti ber að túlka sem tilraun til ólögmætrar auðgunar, enda hvergi að finna heimild til slíkra útreikninga sem stenst stjórnarskrá lýðveldisins. Reiknaða inneign lánþega skal endurgreiða í samræmi við fyrirmæli í lögum. Samtök lánþega vekja athygli á því að ekki hafa enn verið færðar röksemdir fyrir gagnstæðri túlkun og hefur ekkert fjármálafyrirtæki séð sér fært að svara fyrirspurnum lánþega varðandi heimildir til innheimtu fyrir liðinn tíma.
Mest lesið Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Viðskipti innlent Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Sjá meira