Hefur áhyggjur af duldum yfirráðum bankanna Þorbjörn Þórðarson skrifar 25. október 2011 19:30
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins hefur áhyggjur af því að bankarnir hafi dulin yfirráð yfir fjölda fyrirtækja. Þetta raski verulega samkeppnisstöðu og stuðli að ógagnsæi. Hann segir að endurskipulagning fyrirtækja hjá bönkunum gangi of hægt. Keppinautar fyrirtækja sem eru í eigu bankanna telja að eignarhald þeirra, eins og í tilviki Pennans, raski verulega samkeppni. Leikurinn sé ójafn. Samkvæmt 22.gr. laga um fjármálafyrirtæki mega bankar aðeins eiga fyrirtæki í óskyldum rekstri tímabundið og í þeim tilgangi að verið sé að endurskipuleggja rekstur viðkomandi félags. Þessari vinnu á að ljúka á 12 mánuðum en FME getur framlengt frestinn að gefnum rökstuðningi um hvað hindri sölu á fyrirtækinu, eins og í tilviki Arion banka og Pennans, en Arion banki hefur átt fyrirtækið í rúm tvö og hálft ár. Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, vill að eftirlitsaðilar fylgi tímafrestum í lögunum eftir af festu. „Við óttumst að mál Pennans sé fyrsta mál af mörgum sem sé að koma upp. Það geta komið fleiri mál upp þar sem bankar eiga atvinnufyrirtæki sem eru í samkeppni við önnur fyrirtæki. Þá getur mjög fljótlega komið til skaðlegrar íhlutunar bankans í rekstur fyrirtækisins sem er eitthvað sem við getum ekki sætt okkur við á samkeppnismarkaði," segir Almar. Samkeppniseftirlitið hefur sett eignarhaldi bankanna á fyrirtækjum í óskyldum rekstri ákveðnar skorður og lagt á það áherslu að bankarnir haldi ekki á fyrirtækjunum til langframa. Fram kemur í lögum um fjármálafyrirtæki að bankarnir megi ekki eiga fyrirtæki í óskyldum rekstri lengur en í 12 mánuði. Er ekki óeðlilegt að Arion banki sé að reka Pennann í tvö og hálft ár? „Nú er það Fjármálaeftirlitsins að fylgja þeim lögum eftir og svara fyrir það. Hitt er svo annað mál að Samkeppniseftirlitið hefur haft af því áhyggjur að þetta ferli gangi of hægt hjá bönkunum. Við birtum skýrslu í vor sem benti eindregið til þess að þetta ferli væri ekki að ganga nógu hratt og tefði endurreisn atvinnulífsins," segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Páll Gunnar segir mjög slæmt að banki sé eigandi að tilteknu fyrirtæki en sé svo að sinna fjármálaþjónustu á sama markaði. Þessi tvö hlutverk fari ekki saman. Hann segir að Samkeppniseftirlitið muni fylgja eftir ábendingum varðandi rekstur Pennans og kanna hvort þær eigi við rök að styðjast. Vandamálið sé hins vegar stærra. „Ég hef af því áhyggjur að það sé ennþá dulinn vandi þarna undir. Að það sé ekki verið að endurskipuleggja fyrirtækin með nægilega skýrum hætti. Þau séu mörg hver í slæmri stöðu. Og að það séu dulin yfirráð bankanna til staðar. Þeir hafa verið að tilkynna í mörgum tilvikum um yfirráð sín, en þegar horft er til þess hversu mörg fyrirtæki, sem ekki er búið að tilkynna til okkar, eru samt í mjög slæmri stöðu og í raun og veru ekki í stöðu til að ráða örlögum sínum, þá hefur maður af því áhyggjur að vandinn sé stærri og það eigi eftir að tilkynna til okkar um mörg fyrirtæki í viðbót," segir Páll Gunnar. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira