Skúli Mogensen hefur flugrekstur til og frá Íslandi 25. október 2011 22:48 Skúli Mogensen var áður hjá MP banka.
Innan skamms munu Íslendingar fá nýjan valkost í alþjóðaflugi. Títan, fjárfestingarfélag sem er að fullu í eigu Skúla Mogensen fjárfestis, hefur um hríð skoðað kosti þess að hefja flugrekstur til og frá Íslandi, samkvæmt tilkynningu frá félaginu. Þar segir að sú vinna sé nú á lokastigi. Verið er að klára samninga við stóran kanadískan flugrekenda um langtímaleigu á nokkrum Boeing-þotum sem mynda munu flugflota félagsins í upphafi. Félagið hyggst hefja flug til Evrópu í vor. Það mun hafa höfuðstöðvar sínar á Íslandi og vera að fullu í íslenskri eigu. Frekari upplýsingar um nafn hins nýja flugfélags, til hvaða áfangastaða verður flogið og hvenær sala flugmiða hefst, verða veittar á næstunni. Félag utan um flugreksturinn hefur verið að fullu fjármagnað. Það verður í meirihlutaeigu Títan, en aðrir hluthafar eru Baldur Baldursson og Matthías Imsland, fyrrverandi forstjóri Iceland Express. Baldur er framkvæmdastjóri félagsins sem unnið hefur að verkefninu og heitir Iceland jet ehf til bráðabirgða. Stjórn félagsins skipa Skúli Mogensen eigandi Títan, Baldur Baldursson framkvæmdastjóri, Davíð Másson forstjóri og Björn Ingi Knútsson fyrrv. forstjóri Keflavíkurflugvallar og fulltrúi Norðurlanda í IATA - alþjóðasamtökum flugrekenda. Skúli Mogensen er jafnframt stjórnarformaður hins nýja félags. „Þetta er afar spennandi verkefni. Við sjáum margvísleg tækifæri í íslenskum ferðaiðnaði og ég hlakka til að taka þátt í að efla hann enn frekar á komandi árum," segir Skúli í tilkynningunni.
Mest lesið Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Viðskipti innlent Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Atvinnulíf John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Viðskipti innlent Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Sjá meira