Býst við að Íbúðalánasjóður bjóði óverðtryggð lán á næsta ári Hafsteinn G. Hauksson skrifar 3. september 2011 18:30
Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs telur að sjóðurinn gæti byrjað að veita óverðtryggð íbúðalán á fyrri hluta næsta árs ef væntanleg lagaheimild verður að veruleika. Enn á þó eftir ná samkomulagi við lífeyrissjóði um fjármögnun óverðtryggðra útlána. Þingmenn vonast til að hægt verði að veita Íbúðalánasjóði heimild í lögum til að veita óverðtryggð lán strax í þessum mánuði, en málið er nú til umfjöllunar í félags- og tryggingamálanefnd. Þá stendur spurningin eftir, mun íbúðalánasjóður koma til með að nýta þessa heimild verði hún fyrir hendi? „Auðvitað er það von okkar að það takist að gera þessa breytingu; að koma á óverðtryggðum lánum. Það er það sem við erum að skoða, og með þessari heimild yrðum við þá komin með umboð til athafna ef við teljum að hægt sé að bjóða upp á þessa vöru með forsvaranlegum hætti," segir Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri sjóðsins. Sigurður segir að enn séu nokkur mál óleyst, til dæmis séu viðræður framundan um hvort fagfjárfestar á borð við lífeyrissjóði geti hugsað sér að kaupa óverðtryggð skuldabréf Íbúðalánasjóðs til að fjármagna útlánin. „Ég held að allir geri sér grein fyrir því að til langs tíma, þá liggur leiðin í óverðtryggða fjármögnun. En það er kannski erfitt að stíga fyrstu skrefin," segir Sigurður um stemninguna meðal fjárfesta fyrir þessum hugmyndum. Jafnvel þó heimildin komi til í þessum mánuði gæti þannig orðið nokkurra mánaða bið á að Íbúðalánasjóður hefji að veita óverðtryggð lán. „Ef það koma ekki upp neinar stórkostlegar hindranir á þessari leið, þá gæti það farið að skýrast á fyrri hluta næsta árs." Sigurður sér fyrir sér að lánin verði til skemmri tíma, til dæmis tíu ára, sem síðan þyrfti að endurfjármagna, en hann telur líklegt að lánin verði með föstum vöxtum þar sem breytilegir vextir geti með reglulegu millibili sett lántaka í greiðsluvandræði þegar vextir hækka. En verða þessir lánakostir þá raunverulegur valkostur sem heimilin sjá sér hag í að nýta? „Það er það sem við erum að vona; að við getum komið með þennan raunverulega valkost inn á markaðinn og boðið hann til fjöldans," segir Sigurður að endingu.
Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira