Gosið lækkar hluti í Icelandair um 7,4% 23. maí 2011 12:14
Gengi flestra evrópskra flugfélaga hefur lækkað nokkuð það sem af er degi eða um 3-5%. Gengi bréfa Icelandair hafa lækkað um 7,4% það sem af er morgni. Icelandair segir í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í morgunað tjón Icelandair Group verði ekki verulegt og að afkomuspá ársins, 9,5 milljarða kr. EBITDA, haldist óbreytt. Þess má geta að metið tap félagsins vegna gossins í Eyjafjallajökli á síðasta ári var um 1,5 milljarðar kr. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þrátt fyrir að eldgosið í Grímsvötnum sem hófst síðastliðinn laugardag hafi verið mjög öflugt í byrjun er talið ólíklegt að það muni hafa sömu áhrif á ferðaþjónustuna og gosið í Eyjafjallajökli í fyrra. Askan í gosinu er þyngri en í Eyjafjallajökli og því líklegt að hún dreifist ekki eins víða. Þegar virðist hafa dregið úr krafti gossins og gefur það viss fyrirheit um að gosið gæti staðið stutt. Gosmökkurinn sem hæst fór í 25 km. hæð er nú í um 10 km. Gosið er hins vegar enn öflugt. Gosin í Grímsvötnum hafa yfirlitt verið stutt og gæti það sagt eitthvað um þróun gosins nú. Ómögulegt er samt að segja til um það með vissu hversu hratt gosið muni réna. Allt flug hefur legið niðri hér á landi síðan í gærmorgun. Með breyttri vindaátt er hins vegar reiknað með því nú að aftur verið hægt að hefja flug síðdegis í dag. Breytt vindátt gæti hins vegar valdið því að aska dreifist til meginlands Evrópu. Reiknað er með að gosaska nái ströndum Skotlands í kvöld og eru flugfélög og stjórnvöld í viðbragðsstöðu. Ólíklegt er hins vegar talið að áhrifin á flugumferð í Evrópu verði eitthvað í líkingu við það sem þau voru í gosinu í Eyjafjallajökli í fyrra en þá lokaðist fyrir flugumferð víða í Evrópu í allt að 6 daga.
Mest lesið Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Fleiri fréttir Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Sjá meira