Mikilvægt að Seðlabankinn klári seinni hálfleik 23. maí 2011 12:42
Greining Íslandabanka segir það mikilvægt að Seðlabankinn klári seinni hálfleik í nýboðuðu útboði á gjaldeyri í skiptum fyrir krónueignir erlendra aðila. Ekki sé kálið sopið þótt í ausuna sé komið ef Seðlabankanum tekst ekki að endurselja þeir krónueignir sem hann kaupir. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að ekkert liggi fyrir um seinni legg þessa fyrsta skrefs í afnámi gjaldeyrishafta. Sá leggur snýst um að selja lífeyrissjóðum löng verðtryggð ríkisbréf gegn greiðslu í gjaldeyri. Í áætlun Seðlabankans um afléttingu hafta er talað um þennan seinni legg á þeim nótum að hann muni fara fram í samhengi við þann fyrri, og því athyglisvert að ekkert skuli enn liggja fyrir um tilhögun eða tímasetningu hans. Í bili er því staðan sú að Seðlabankinn mun að öllum líkindum leggja til andvirði 15 milljarða kr. í gjaldeyri, á því gengi sem tekin tilboð hljóða upp á, úr gjaldeyrisforða sínum. Heildarstærð forðans var, samkvæmt gögnum frá Seðlabankanum, 759 milljarðar kr. í apríl, jafnvirði u.þ.b. 4,7 milljarða evra. Bróðurpartur forðans er hins vegar tekinn að láni með einum hætti eða öðrum. Nettó skammtíma gjaldeyrisstaða var þannig 207 milljarðar kr. um síðustu mánaðamót. Ljóst er því að Seðlabankinn hefur takmarkaða burði til að selja gjaldeyri úr forðanum nema ná sambærilegum gjaldeyri til baka með einum eða öðrum hætti fyrr en síðar. „Það er að mati okkar lykilatriði að einhver mynd komist fyrr en síðar á þann hluta þessa fyrsta skrefs sem snýr að lífeyrissjóðunum,“ segir í Morgunkorninu. „Lífeyrissjóðirnir eru með þessum viðskiptum að láta eftir hluta gjaldeyriseigna sinna, sem þeir munu að öllum líkindum ekki geta aukið við að nýju á næstu árum, því í áætlun Seðlabankans er talað um að sjóðirnir muni líklega sæta meiri takmörkunum á erlendum fjárfestingum en aðrir fjárfestar á seinni stigum haftaafléttingar.“ Síðan segir að sjóðirnir vilji því skiljanlega fá nokkuð fyrir sinn snúð, og til samanburðar var undirliggjandi gengi í Avens-viðskiptum þeirra við ríkissjóð/Seðlabankann í fyrra u.þ.b. 220 kr. á evruna. Jafngildir það 38% hærra krónuverði fyrir evruna en raunin var á innlendum markaði á þeim tíma. Áætlaðar krónueignir erlendra aðila, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka, eru nú 465 milljarðar kr. og erlendar eignir lífeyrissjóða námu í lok mars 483 milljörðum kr.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira