Lögregla rannsakar mál Gunnars 4. mars 2011 08:00 Gunnar Þorsteinsson
Konurnar átta sem ásaka Gunnar Þorsteinsson, forstöðumann Krossins, um kynferðislega áreitni hafa nú gefið sig fram til lögreglu. Skýrslutökum er að ljúka og mun Gunnar væntanlega verða kallaður í skýrslutöku í kjölfarið. Ásta Knútsdóttir, talskona kvennanna, segir málin hafa endað á borði yfirvalda vegna þess að þolinmæði kvennanna hafi runnið út. „Við höfum árangurslaust reynt að ná áheyrn stjórnar Krossins og innanríkisráðherra gat ekki gefið okkur ráð. Það bólar ekkert á fagráðinu hjá Krossinum og Gunnar vill ekki gangast við neinum brotum, þannig að við ákváðum að láta reyna á þetta," segir Ásta. „Við erum að vonast til þess að [Gunnar] verði í það minnsta kallaður fyrir. Svo á eftir að koma í ljós hvort öll málin séu fyrnd." Ásta segir konurnar afar glaðar með að stíga þetta skref. Það sé ákveðin goðsögn útbreidd í samfélaginu um að ef brot hafi átt sér stað fyrir mörgum árum sé ekki hægt að tilkynna þau til lögreglu. „Við erum mjög glaðar yfir móttökum lögreglunnar," segir hún. „Nafn Gunnars er þá í það minnsta komið á skrá þannig að ef fleiri konur tilkynna hann til lögreglu mun nafn hans vera þar." Gunnar kvaðst ekki hafa heyrt af tilkynningu kvennanna til lögreglu þegar Fréttablaðið hafði samband við hann. Hann vildi ekki tjá sig frekar um málið. - sv
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn Sjá meira