Landsbankinn tekur yfir starfsemi SpKef 4. mars 2011 12:15
Sparisjóðurinn í Keflavík verður að öllum líkindum sameinaður Landsbankanum en viðræður eru langt komnar. Stjórnarmenn í sparisjóðnum voru ekki hafðir með í ráðum og lásu fyrst um þetta í fjölmiðlum. Þeir búast við að þetta verði jafnvel klárað um helgina. Unnið er að því innan Bankasýslu ríkisins að renna SpKef, þ.e Sparisjóðnum í Keflavík, inn í Landsbankann, en Bankasýslan heldur á hlutum ríkisins í báðum fyrirtækjunum. Þetta þýðir þó ekki að ríkissjóður komist hjá því að leggja 14-15 milljarða króna inn í SpKef til að mæta skuldbindingum vegna innistæðna, en heildarskuldbindingar vegna innistæðna nema alls átján milljörðum króna. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru viðræður um sameiningu SpKef og Landsbankans langt komnar. Svo virðist stjórn SpKef hafi ekki verið höfð með í ráðum því stjórnarmenn sem fréttastofa ræddi við í dag sögðust fyrst hafa lesið um málið í fjölmiðlum og er nokkur gremja vegna málsins innan stjórnarinnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru þessar hugmyndir um sameiningu komnar frá Árna Páli Árnasyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, en Árni Páll hefur ekki svarað skilaboðum fréttastofu í dag. Stjórnarmenn hjá SpKef sem fréttastofa ræddi við sögðust jafnvel búast við að áform um sameiningu verði kynnt á mánudag. Eftir því sem fréttastofa kemst næst verða þau útibú SpKef sem rekin verða áfram rekin undir merkjum Landsbankans ef sameiningin verður að veruleika. Nokkur umræða hefur verið að undanförnu um stærð bankakerfisins og nauðsyn frekari sameiningar til að ná fram hagræðingu. SpKef rekur í dag sextán útibú á landinu en þar af eru fimm í Reykjanesbæ.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira